|
|
16.
desember 2011
Litlu jólin þriðjudaginn 20.
desember
|
Dagskrá
13:00 Mæting í skólann (ATH! Breyttur tími frá fyrri árum)
13:10 Gengið til kirkju
1. Hugvekja
2. Kór
3. Helgileikur - nemendur í 6. bekk
4. Kór
13:40 Jóladansleikur í íþróttasal
14:30 Litlu jól í stofum
15:30 Dagskrárlok
Nemendur eiga að hafa með sér smákökur og/eða kex og drykk. Gosdrykkir
eru leyfðir en ekki sælgæti. Nemendur þurfa einnig að koma með
sprittkerti og ílát undir það og litla jólagjöf. Miðað er við að gjöfin
kosti að hámarki kr. 500,-.
Foreldrar er hvattir til þess að taka þátt í þeirri dagskrá sem fram fer
í kirkjunni og íþróttasalnum.
Athygli er vakin á því að skóladagheimilið verður opið fyrir hádegi ef
þörf er á. Foreldrar eru vinsamlega beðnir um að láta vita strax ef þeir
hafa áhuga á að nýta sér það.
Skólastarf hefst að
nýju samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 4. janúar.
Gleðileg jól!
Starfsfólk Blönduskóla |
 |
|
|
25.
nóvember 2011
Aðventudagur foreldrafélagsins
|
Næstkomandi sunnudag, 27. nóvember, verður árlegur aðventudagur
foreldrafélagsins haldinn í Blönduskóla. Dagskráin hefst klukkan 13 og
stendur til klukkan 16. Að venju verður boðið uppá ýmiskonar
föndurpakkningar, piparkökur til að skreyta, pappírsföndur og
ullarþæfingu - allt á viðráðanlegu verði.
Fyrir þá sem þurfa pásu frá föndrinu verður spilahorn og þeir svöngu
þurfa ekki að örvænta því 10. bekkingar verða með kaffihús.
Þá munu nokkrir nemendur úr Tónlistarskólanum spila fyrir okkur svo við
eigum von á frábærum degi.
Mömmur, pabbar, ömmur, afar, frænkur og frændur - nú drífið þið ykkur af
stað með börnunum ykkar og eigið ánægjulega stund í skólanum.
Með von um að sjá ykkur sem flest
Foreldrafélagið
|
 |
3.
september 2011
Vefur
|
Ágætu
lesendur.
Því
miður gengur okkur erfiðlega að koma nýjum upplýsingum og uppfærslum inn
á vefinn og gætu því einhverjar undirsíður verið misvísandi. Biðjumst
við velvirðingar á þessu en hvetjum foreldra til að nýta sér
tölvupóstsamskipti og nemendur og foreldra til að fara reglulega inn á
Mentor.
|
Kynningarkvöld
|
Hinir
árlegu kynningarfundir verða haldnir dagana 7. og 8. sept. nk.
Miðvikudagur, 7. september:
·
Olweusarfundur fyrir alla foreldra grunnskólans verður kl. 19:30
í Félagsheimilinu á Blönduósi.
Guðbjörg Inga Guðmundsdóttir sérkennari í Árskóla og umsjónarmaður
Olweusarverkefnisins á þessu svæði mun ræða um einelti,
Olweusaráætlunina og niðurstöður eineltiskannanna síðustu ára.
·
Kynningarkvöld fyrir foreldra 1. – 5. bekkjar.
Fundir
hefjast kl. 20:45 og gert er ráð fyrir að þeim ljúki eigi síðar en kl.
21:45. Dagskráin fer fram í heimastofum viðkomandi bekkja þar sem
foreldrar hitta umsjónarkennara barna sinna og farið verður yfir
skólastarf vetrarins.
Fimmtudagur, 8. september:
Kynningarkvöld fyrir foreldra 6. – 10. bekkjar.
Fundir
hefjast kl. 19:30 og gert er ráð fyrir að þeim ljúki kl. 20:30.
Dagskráin fer fram í heimastofum viðkomandi bekkja þar sem foreldrar
hitta umsjónarkennara barna sinna og farið verður yfir skólastarf
vetrarins.
Mikilvægt er að allir
nemendur eigi a.m.k. einn fulltrúa á þessum fundum.
Skólastjóri
|
 |
8.
ágúst 2011
Skólasetning
|
Blönduskóli verður settur
mánudaginn 22. ágúst næstkomandi kl. 11:00. Þeir foreldrar sem eiga
eftir að skrá börn sín í skólann eru beðnir um að gera það sem fyrst hjá
skólastjórnendunum Þórhöllu og Berglindi í síma 452-4147 eða með
vefpósti á
blonduskoli@blonduskoli.is.
Nánari upplýsingar verða
settar á vefinn þegar nær dregur.
Skólastjóri |
30.
maí 2011
Skólaslit
|
 |
|
Kæru
útskriftarnemar,
við
óskum ykkur til hamingju með þennan mikilsverða áfanga í lífi ykkar. Við
viljum einnig þakka ykkur samfylgdina og óska ykkur alls hins besta í
framtíðinni.
Einnig
þökkum við foreldrum útskriftarnema fyrir gott samstarf í gegnum árin.
Starfsfólk
Blönduskóla
Starfsfólk Blönduskóla þakkar öllum nemendum og foreldrum þeirra fyrir ánægjuleg
samskipti á skólaárinu og vonar að þið njótið sumarsins. Hittumst hress
og endurnærð í haust.
Skólasetning verður 22.
ágúst nánar auglýst síðar. Nýtt skóladagatal er komið á netið. |
25.
maí 2011
Stuttmyndir
|
Hér má sjá nokkrar stuttmyndir sem nemendur í
upplýsingatæknismiðju unnu á vorönninni smellið á táknið hér til hægri. |
 |
24.
maí 2011
Valgreinar
|
Til nemenda í 7., 8. og 9. bekk og foreldra þeirra!
Boðað er til fundar í Blönduskóla miðvikudaginn 25. maí kl. 19:00
Efni fundarins:
Kynning á valgreinum sem í boði verða skólaárið 2011-2012
Fundurinn fer fram í stofu 6.
Gott er að vera búinn
að skoða valgreinabækling sem þið finnið
hér til hægri
Með kveðju
Sigríður Bjarney
Aadnegard aðstoðarskólastjóri
|
 |
23.
maí 2011
Vordagar
|
Loksins er
síðan komin í lag ekki seinna vænna þar sem skólaárið er brátt á enda.
Í morgun
lögðu nemendur 10. bekkjar af stað í langþráða útskriftarferð.
Nemendur 9.
bekkjar fóru að Fjósum í Svartárdal og unnu í skóginum með Páli Ingþóri.
Nemendur 8.
bekkjar fóru að Þingeyrum og nemendu 6. bekkjar skelltu sér í Dalsmynni
í Svínadal.
Nemendur 4.
og 5. bekkjar heimsóttu Gunnfríðarstaðaskóg og ef þið smellið á myndina
hér til hægri sjáið þið hvað það var gaman hjá þeim. |
 |
Vorsýning
|
Sýning á verkum nemenda, sem þeir hafa unnið í vetur,
fer fram í „Nýja” skóla
miðvikudaginn 25. maí, frá kl. 17:00-19:00.
Allir hjartanlega velkomnir
Nemendur og starfsfólk
Blönduskóla |
 |
8.
mars 2011
Grímuball
|
Miðvikudaginn 9. mars 2011 (öskudag)
verður hið árlega grímuball haldið
í
Félagsheimilinu á Blönduósi
Dagskrá:
19:00
Húsið opnar
19:30
Marsering og dans
Slá köttinn úr tunnunni
Dans
21:15
Dagskrá lýkur
Aðgangseyrir: kr. 400 fyrir grímuklædda
kr. 800 fyrir aðra
Frítt fyrir yngri en 6 ára
Börn,
foreldrar og aðrir bæjarbúar eru hvattir til að koma grímuklæddir.
Starfsfólk og nemendur Blönduskóla |

Ætli þessir mæti í ár? |
2.
mars 2011
Árshátíð
|
Árshátíð
skólans sem haldin var föstudaginn 25. febrúar var hin glæsilegasta að
vanda. Að venju vorum við skólastýrurnar að rifna úr stolti yfir þessum
frábæru nemendum sem eru skólanum okkar alltaf til sóma.
Sigurvegari
“Blönduvision” í ár var Albert óli Þorleifsson 8. bekk.
Viljum við
þakka öllum þeim sem komu á árshátíðina og vonum að þeir hafi skemmt sér
eins vel og við.
Kæru
nemendur takk fyrir frábæra skemmtun, þið eruð æðisleg!
Þess má geta að leikhópurinn okkar tekur þátt í
Þjóðleik sem er samstarfsverkefni Þjóðleikhússins og fjölda aðila á
Norðurlandi með stuðning sveitarfélaga og fyrirtækja á svæðinu. Mun
hópurinn taka þátt í
leiklistarhátíð Þjóðleiks sem haldin verður á Akureyri helgina 1.-3.
apríl.
|
 |
Óvitinn
|
Nemendur unglingadeildar tóku viðtöl við fjölda áhugaverðra persóna nú
eftir áramótin. Þrjú viðtalanna voru birt í Skólablaðinu Vit en þar sem
ekki var pláss fyrir fleiri var sú ákvörðun tekin að birta viðtöl líka á
Óvitanum.
|
Árshátíð 2011
|
Hin árlega árshátíð
Blönduskóla
verður haldin föstudaginn 25. febrúarí
Félagsheimilinu á Blönduósi.
Húsið opnar
kl. 19:30.
Árshátíðin
hefst kl. 20:00 og lýkur kl. 01:00.
Dagskrá
hefst með ávarpi
formanns nemendaráðs
Elínborgar Telmu Ágústsdóttur,
næst verður
sýnt leikritið Iris,
eftir
Brynhildi Guðjónsdóttir og Ólaf Egil Egilsson,
í leikstjórn Jófríðar Jónsdóttur.
Eftir
leikritið verða glæsilegar
kaffiveitingar
og svo verður hin árlega og frábæra
Blönduvision
sem allir
bíða spenntir eftir.
Undirleikur
er í höndum nokkurra nemenda úr elstu bekkjum skólans.
Eins og
venjulega verður
happdrætti.
Að lokinni
skemmtidagskrá fer fram
dansleikur þar sem hinn
frábæri
plötusnúður DJ Doddi
Mix spilar fyrir dansi.
Miðaverð
6. bekkur
og eldri kr. 2.000.-
1. – 5.
bekkur kr. 1.000.-
6 ára og
yngri fá frítt.
Vonandi sjá
sem flestir sér fært að mæta.
|
11.
febrúar 2011
Prjónakeppni lokið
|
Nú er
prónakeppni milli nemenda í unglingadeild og
starfsmanna lokið með
sigri nemenda. Prjónuðu þeir um það bil 20 cm lenga en
starfsmenn.
Þökkum
við starfsmenn nemendum fyrir skemmtilega og drengilega keppni og óskum
þeim til hamingju.
|
 |
10.
febrúar 2011
Nemendur og starfsmenn Blönduskóla prjóna
!
|
Þessa dagana er verið
að setja upp árshátíðarleikritið hér í skólanum. Það vantaði langan
trefil og kom upp sú hugmynd að nemendur og starfsmenn prjónuðu hvor
sinn helming og blásið var til keppni. Nú prjóna bæði nemendurog
starfsmenn þegar lausar stundir gefast t.d. í frímínútum og
hádegishléum. Keppnin virðist ætla að verða þó nokkur því síðasta mæling
sýndi að nemendur hafa prjónað um 5 cm lengra en starfsmenn.
|
 |
8.
febrúar 2011
Heimsókn í Sölufélagið
|
Þann
13. október s.l. mætti 8. bekkur Blönduskóla í skoðunarferð í
Sölufélagið. Tilgangur ferðarinnar var að skoða starfsemina sem þar fer
fram meðan sauðfjárslátrun stendur yfir en það er orðinn fastur liður að
sá bekkur á unglingastigi þar sem náttúrufræðinám tengist líffræði,
heimsæki fyrirtækið um þetta leyti árs.
Eins
og vanalega var höfðinglega tekið á móti okkur og nemendum og kennurum
fylgt um svæðið af þeim Árnýju Þóru Árnadóttur og Margréti
Kjartansdóttur sem útskýrðu verkferla og svöruðu spurningum áhugasamra
nemenda og kennara.
Skoðunarferðinni lauk svo í kaffistofu starfsfólks þar sem boðið var upp
á sviðasultu smökkun og súkkulaðibita.
Á
meðan nemendur gæddu sér á góðgætinu sýndi Árný þeim hvernig gerlasýni
er tekið, einnig sýndi hún myndir af gerlum og útskýra hvernig þeir
fjölga sér og hvers vegna nauðsynlegt er á vinnustað sem þessum að halda
gerlum í lágmarki. Þökkum við kærlega fyrir móttökurnar.
Sjá meðfylgjandi myndir.
Kveðja
Lilja og Berglind
|
 |
13.
janúar 2011
Skáld í skólum
|
Í
dag fengum við góða heimsókn á vegum bókmenntaverkefnisins
„Skáld í skólum",
en til okkar komu ljóðskáldið Aðalsteinn Ásberg og söngvaskáldið Svavar
Knútur.
Þeir félagar sögðu okkur sögu Steins Steinarrs og röktu feril hans í
ljóðum, söngvum og myndum. Skemmtileg og fræðandi sýning um þetta merka
ljóðskáld sem þrátt fyrir stutta ævi og bág kjör afrekað svo mikið.
|
 |
12.
janúar 2011
Gjöf til Styrktarsjóðs
|
Í dag, 12. janúar, færðu nemendur í
9. bekk Blönduskóla Styrktarsjóði Húnvetninga andvirði jólagjafa
litlu jólanna. Einn stjórnarmanna, Gunnar Tryggvi Halldórsson, kom í
tíma til krakkanna og veitti gjöfinni viðtöku.
Venjulega skiptast nemendur á
jólagjöfum á litlu jólunum en í ár ákváðu nemendurnir að gefa andvirði
gjafanna til góðs málefnis. Styrktarsjóðurinn varð fyrir valinu „þar sem
hann styður fólk á svæðinu okkar,“ svo orð þeirra séu notuð.
Fylgdu gjöfinni óskir um að hún komi
að góðum notum.
Gunnar nýtti tækifærið og kynnti
sjóðinn og starfsemi hans örlítið, ásamt því að segja frá hvaða félög og
samtök stæðu að honum. Var hann ekki í nokkrum vafa um að gjöfin kæmi
sér vel, enda allir styrkir til sjóðsins vel þegnir.
|
 |
28. desember 2010
 |
Gleðileg jól og farsælt komandi ár
þökkum það liðna.
Kennsla hefst
þriðjudaginn 4. janúar
samkvæmt stundaskrá.
Kveðja starfsfólk
Blönduskóla
|
 |
|
Til umhugsunar
Því miður
verða slys á börnum í tengslum við flugelda um hver einustu áramót.
Flest þessara slysa verða hjá strákum og alvarlegustu slysin verða þegar
meðhöndla flugeldavörurnar á annan hátt en ætlast er til.
Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur undanfarin ár reynt að
sporna við þessum slysum með ýmsum hætti, svo sem flugeldagleraugum og
almennri fræðslu.
Miklu máli
skiptir að gera börnum grein fyrir þeim hættum sem fylgja því að að búa
til sínar eigin sprengjur, taka flugelda í sundur eða skjóta upp
flugeldum sem þau hafa ekki aldur til að gera.
Slysavarnafélagið Landsbjörg útbjó myndbandið Ekkert fikt
fyrir þremur árum. Markmiðið með myndbandinu er að gera börnum grein
fyrir alvarleika þessa fikts.
Hægt
er að skoða myndbandið á síðu félagsins
http://www.landsbjorg.is/category.aspx?catID=569 |
Tilkynning um hækkun á gjaldskrá
|
Á
fundi bæjarstjórnar Blönduósbæjar þann 21. desember síðastliðinn var
samþykkt hækkun á gjaldskrá bæjarins.
Skólamáltíðir og einingaverð á skóladagheimili hækka um 5% frá og með
1.febrúar 2011 og verða sem hér segir:
Skólamáltíðir:
-yngri 368
-eldri 399
Gjaldskrá skóladagheimilisins |
15.
desember 2010
Litlu jólin föstudaginn 17. desember
|
Dagskrá
14:00 Mæting í skólann
14:10 Gengið til kirkju
1. Hugvekja
2. Kór
3. Helgileikur - nemendur í 6. bekk
4. Kór
14:40 Jóladansleikur í íþróttasal
15:30 Litlu jól í stofum
16:30 Dagskrárlok
Nemendur eiga að hafa með sér smákökur og/eða kex og drykk. Gosdrykkir
eru leyfðir en ekki sælgæti. Nemendur þurfa einnig að koma með
sprittkerti og ílát undir það og litla jólagjöf. Miðað er við að gjöfin
kosti að hámarki kr. 500,-.
Foreldrar er hvattir til þess að taka þátt í þeirri dagskrá sem fram fer
í kirkjunni og íþróttasalnum.
Athygli er vakin á því að skóladagheimilið verður opið fyrir hádegi ef
þörf er á. Foreldrar eru vinsamlega beðnir um að láta vita strax ef þeir
hafa áhuga á að nýta sér það.
Gleðileg jól!
Starfsfólk Grunnskólans á Blönduósi |
 |
 |
10.
desember 2010
Skeytingadagurinn
|
Hinn árlegi
Skreytingadagur var haldinn í dag og iðaði skólinn af lífi og fjöri eins
og sjá má á myndunum sem hér fylgja.
Nemendur
unnu við margvísleg verkefni og afraksturinn var glæsilegur enda bara
snillingar hér á ferð.
Myndir |
 |
8.
desember 2010
Fréttir af skólastarfi
|
Námsmat
Nú
stendur yfir námsmatsvika í skólanum. Nemendur í 8. – 10. bekk fá
svokallaða prófamöppu sem hefur að geyma próf úr öllum þeim greinum sem
prófa á úr. Próftíminn er frá kl. 8:00-11:00 og hafa nemendur þrjá daga
til að leysa prófin. Nemendur geta því séð hvað þeir þurfa að læra
betur og undirbúið sig fyrir næsta dag, einnig eru kennarar til viðtals
eftir kl. 11:00 fyrir þá sem vilja og svara spurningum nemenda. Í öðrum
bekkjum taka nemendur prófin í kennslustundum. Annarskipti verða
10.janúar og í framhaldi af því fá nemendur vitnisburð haustannar.
Skreytingardagur verður 10. des og Litlu jólin verða síðan haldin með
hefðbundnum hætti þann 17. des.
|
 |
|
Sjáumst
Velunnarar skólans færðu okkur á dögunum endurskinsvesti. Vestin koma að
góðum notum sérstaklega nú í skammdeginu þegar nemendur fara í
heimilisfræði. Hér á myndinni er nemendur úr 2. – 4. bekk að leggja af
stað með Guðrúnu skólaliða og eins og sjá má eru allir vel sýnilegir.
Við
viljum minna á mikilvægi þess að nota endurskinsmerki, ekki síst nú í
svartasta skammdeginu.
|
 |
|
Gjafir
Nú annað árið í röð sendir
SAMAN-hópurinn
öllum börnum í 5. bekk á landinu spilastokk að gjöf. Markmiðið er að
hvetja til samverustunda fjölskyldunnar og á spilin eru prentuð heilræði
til barna og foreldra sem undirstrika mikilvægi samveru fjölskyldunnar.
Að baki heilræðum liggja niðurstöður vísindalegra
rannsókna sem hugmyndafræði SAMAN-hópsins byggir á en hún er sú að
samvera fjölskyldunnar sé ein besta forvörn sem völ er á. Verkefnið er
styrkt af Pokasjóði
5. bekkur hér í Blönduskóla fékk sína spilastokka afhenta í morgun. Það
er von SAMAN-hópsins að gjöfin nýtist börnum og fjölskyldum þeirra til
innihaldsríkra og skemmtilegra samverustunda nú í desember og næstu
árin, jafnt á tyllidögum sem hversdags.
 |
 |
|
Framtíðin í okkar höndum
8.-10. bekkur
Þessa þemadaga í unglingadeild var sjónum aðallega beint að sjálfbærni
og þáttum henni tengdum.
Tekið var forskot á sæluna með því að heimsækja nýja gámasvæðið vikunni
áður. Þar tók á móti okkur Vilhelm Harðarson frá Sorphreinsun V.H. og
fræddi hópinn um svæðið og breytingar sem orðið hafa í sorphirðu og
sorpurðun hjá Blönduósbæ síðustu árin. Að auki bauð hann rútuferðir
fyrir alla nemendur skólans upp að nýja urðunarsvæðinu sem var mjög
forvitnilegt og gaman að skoða.
Þemadagana sjálfa unnu nemendur í fjórum hópum sem þeir fengu að velja
sjálfir. Verkefnin sem hægt var að velja um voru Heimurinn, Blönduós,
Heimilið og Skólinn okkar (Grænfánaverkefni).
Nemendur sem völdu “Heiminn” veltu fyrir sér gróðurhúsaáhrifum, hvað þau
eru, hvað orsaki þau, af hverju þau eru að verða vandamál o.s.f.v.
Sérstaklega var sjónum beint að hlýnun á norðurslóðum og bráðnun
heimskauta. Upplýsingar voru settar upp á veggspjöld.
Nemendur sem völdu “Blönduós” veltu fyrir sér nýja urðunarsvæðinu við
Stekkjarvík, hversu stórt það er og hvers vegna þörf sé fyrir slíkt
landsvæði fyrir sorp. Gerð voru 2 líkön af nýja skólanum og eitt af
holunni við Stekkjarvík. Þrír nemendur kynntu sér hvers konar úrgangur
fellur til hjá nokkrum fyrirtækjum í bænum, í hvaða magni og hvaða
leiðir eru við förgun hans.
Nemendur sem völdu “Heimilið” skoðuðu flokkun heimilissorps og gerðu
könnun meðal bæjarbúa um hvort og hversu mikið viðkomandi flokkar sorp.
Einnig voru vottunarmerki skoðuð og búin til veggspjöld með upplýsingum
um niðurstöður kannanana og vottunarmerkin.
Nemendur sem völdu “Skólann (grænfánaverkefni)”
kynntu sér Grænfána verkefni Landverndar. Þeir skoðuðu hvaða
skilyrði skólar þurfi að uppfylla til að geta orðið „Grænfánaskólar“.
Þeir skoðuðu Blönduskóla, hver staða hans væri og hvaða breytingar
þyrfti að gera á umhverfismálum í skólanum til að hann gæti orðið
„Grænfánaskóli“. Nemendur gerðu aðgerðaáætlun sem miðaði að því að
umhverfisvæða Blönduskóla og undirbúa þannig umsókn fyrir
Grænfánaverkefnið. Upplýsingar voru settar fram á veggspjöldum.
|
 |
|
Framtíðin í okkar höndum
1.-4. bekkur
Krakkarnir voru undirbúnir með því að lesa söguna um Friðjólf pítsakassa
og Freyju fernu (sorpa.is) og verkefni unnin í tengslum við hana. Farið
var í vettvangsferðir í Gámaþjónustuna og stóra holan og svæðið í
Stekkjavík skoðað. Allir krakkarnir fóru inn á umhverfisvefinn
heimurinn.is í tölvum. Þetta kom þeim nokkuð vel inn í málin. Næstu daga
á eftir var unnið að fjórum mismunandi verkefnum.Verkefnin voru
eftirfarandi:
·
Skálar úr pappamassa.
·
Servéttur límlakkaðar á krukkur.
·
Pennastatif á platta úr pappakössum.
·
Bókin Ruslaskrímslið lesin og rædd og verkefni unnin út frá henni.
Krakkarnir horfðu á fræðslumyndbönd af sorpa.is um endurvinnslu bæði
raunveruleg og leikin. Síðasta daginn var svo sýning með afrakstri vinnu
liðinna daga.
Viðfangsefnin miðuðu öll að því að gera krakkana meðvitaðri um umhverfi
sitt og hversu mikilvægt er að ganga um jörðina af virðingu en ekki með
græðgi og yfirgangi.
|
 |
|
Galíleósjónaukinn
Á alþjóðlegu ári stjörnufræðinnar 2009 tók hópur stjarnvísindamanna,
stjörnuáhugamanna og raunvísindakennara sig til og útbjó sérstakan
stjörnusjónauka með það í huga að gera undur alheimsins aðgengileg fyrir
sem flesta.
Sjónaukinn er nefndur Galíleósjónaukinn eftir ítalska vísindamanninum
Galíleó Galílei sem hratt af stað vísindabyltingu þegar hann beindi
sínum heimasmíðaða sjónauka til himins.
Á þessu ári verður öllum grunn- og framhaldsskólum á Íslandi færður
sjónaukinn að gjöf frá Stjörnuskoðunarfélagi Seltjarnarness,
Stjörnufræðivefnum og landsnefnd um ár stjörnufræðinnar 2009.
Sunnudaginn 31. október voru þrír fulltrúar frá gjafahópnum þau Kristín
Helga Schiöth, Ottó Elíasson og Sævar Helgi Bragason á leið um
norðurland og hittu Þórhöllu skólastjóra Blönduskóla og afhentu henni
sjónauka fyrir Blönduskóla, Húnavallaskóla og Höfðaskóla.
Þórhalla þakkaði þessa höfðinglegu gjöf og lofaði að sjá til þess að
sjónaukarnir kæmust til skila.
|
 |
19.
nóvember 2010
Aðventudagur
í Blönduskóla á sunnudaginn
|
Kæru foreldrar og forráðamenn
Nú á sunnudaginn, 21. nóvember, verður árlegur aðventudagur
foreldrafélagsins haldinn í Blönduskóla.
Dagskráin hefst kl. 13 og stendur til kl. 16.
Að venju verður boðið upp á tréhluti til að mála, piparkökur til að
skreyta, pappírsföndur og ullarþæfingu eins og í fyrra - allt á
viðráðanlegu verði.
Fyrir þá sem þurfa pásu frá föndrinu verður spilahorn og þeir svöngu
þurfa ekki að örvænta því 10. bekkingar verða með kaffihús.
Þá munu nokkrir nemendur úr Tónlistarskólanum spila fyrir okkur svo við
eigum von á frábærum degi.
Mömmur, pabbar, ömmur, afar, frænkur og frændur - nú drífið þið ykkur af
stað með börnunum ykkar og eigið ánægjulega stund í skólanum.
Með von um að sjá ykkur sem flest
Foreldrafélagið
|
 |
18.
nóvember 2010
Þemavika
|
Nú
stendur yfir þemavika í skólanum okkar og ber hún yfirskriftina
„Framtíðin
í okkar höndum“.
Viðfangsefnin eru margvísleg en öll miða þau að því að gera nemendur
meðvitaðri um umhverfi sitt og hversu mikilvægt er að ganga um jörðina
af virðingu en ekki með græðgi og yfirgangi.
Á
morgun, föstudaginn 19. nóvember, munu svo nemendur setja upp sýningu í
norðurenda Íþróttamiðstöðvarinnar. Þar verður til sýnis afrakstur
þemavikunnar í formi endurunnina muna og fróðleiks.
Sýningin verður milli kl. 11:50 - 12:30 og gengið verður inn um
skólainnganginn í suðurenda Íþróttamiðstöðvarinnar.
.
Matseðill fyrir desember |

Smellið á
myndina til að sjá fleiri myndir. |
16.
nóvember 2010
Dagur íslenskrar tungu
|
Í tilefni af Degi íslenskrar tungu hafa margir kennarar brotið upp
hefðbundna kennslu og boðið upp á fjölbreytt verkefni.
Unglingarnir í Blönduskóla fundu ljóð um ákveðna staði á Íslandi ýmist í
ljóðabókum eða á internetinu. Þeir skrifuðu svo ljóðin upp eða prentuðu
út, merktu blaðið sitt með númeri og einnig títuprjón. Þeir fundu svo
staðinn á landakorti og merktu með títuprjóninum, ljóðin voru hengd upp
utan við kortið. Varð landakortið hið skrautlegasta en Norðurland og
hálendið sýnilega þéttsetnast.
Var ekki annað að sjá en að verkefnið félli í góðan jarðveg.
|
 |
|
 |
12.
nóvember 2010
Blönduskóli á vef Námsgagnastofnunar
|
Verkefni sem nemendur unglingadeildar Blönduskóla unnu á degi íslenskrar
tungu, 16. nóvember, á síðasta ári er nú sýnilegt á vef
Námsgagnastofnunar.
Verkefnið nefnist götuljóð og felst í því að finna texta í umhverfi sínu
og sjá það ljóðræna við hann.
Nemendurnir fóru út með myndavélar og hluta verka þeirra má, eins og
áður sagði, sjá á vef Námsgagnastofnunar.
Íslenskukennari skólans Magdalena Berglind Björnsdóttir fékk sendan póst
frá umsjónarmanni verkefnisins þar sem fram kom að Blönduskóli væri eini
skólinn sem hafi sent inn myndir.
Nú er bara að kíkja á vefinn og sjá hvað vakti athygli unglinganna fyrir
ári síðan.
Íslensk götuljóð á vef námsgagnastofnunar |
 |
Fréttir frá 5. bekk
|
Leiksýningin Stúlkan í
turninum.
Í tilefni af Degi íslenskrar tungu næsta þriðjudag, setti 5. bekkur upp
leiksýningu byggða á sögunni Stúlkan í turninum eftir Jónas
Hallgrímsson, en Dagur íslenskrar tungu er alltaf á fæðingardegi hans.
Haldnar voru tvær leiksýningar. Fyrst var þriðja og fjórða bekk boðið og
síðan komu fyrsti og annar bekkur. Leiksýningin tókst mjög vel og
leikarar stóðu sig með prýði.
|
 |
|
Heimsókn í sláturhúsið
Fimmti bekkur heimsótti SAH afurðir á meðan á sláturstíð stóð. Við
fengum góðar móttökur og skoðuðum alla staðina í sláturhúsinu nema
banaklefann. Við fengum að sjá hvað gerist þegar skrokkur fer í gegnum
færibandið og bæði ull, innifli og haus eru tekin af kindinni. Þá
skoðuðum við hjörtu, lifur, nýru og lungu og fengum að koma við þetta. Í
lokin var okkur boðið í matsalinn þar sem við fengum kökur og mjólk.
|
 |
|
Eldgos á Blönduósi
Fimmti bekkur var með vísindaverkefni þar sem þau bjuggu til eldfjöll úr
pappamassa og krukku.
Eftir að hafa málað og gert fjöllin flott, þá blönduðum við saman efnum
sem létu fjöllin okkar gjósa. Verkefnið tókst mjög vel og er hægt að
skoða eldgosin okkar á youtube.com undir “Eldgos á Blönduósi”.
Kveðja Helga |
|
3.
nóvember 2010
Bekkjarfulltrúar
27.
október 2010
Myndlistasýning
|
Nú
stendur yfir sýning á verkum nemenda sem verið hafa í myndlistasmiðju nú
í haust. Sýningin er staðsett á göngum í Nýja skóla. Hvetjum við alla
sem ekki hafa séð þessi glæsilegu verk að koma og skoða. |
 |
22.
október 2010
Fréttir frá 1. bekk
|
Í
byrjun október var Elfa Björk Sturludóttir leikskólakennarnemi hjá okkur
í eina viku. Hún fylgdist með kennslunni, hjálpaði til og fleira.
Elfa
Björk skilaði nýverið af sér lokaverkefni sem hún fékk að prufa á
bekknum. Verkefnið gekk út á það að saga var lesin fyrir bekkinn
og krakkarnir voru spurðir út úr henni jafnóðum svo fengu þeir að taka
þátt í söguferlinu með því að setja fígúrur og annað inn á segultöflu
þegar við átti í sögunni.
|
 |
|
Um
miðjan október var farið í Fagrahvamm og trén skoðuð í haustbúningnum.
Krakkarnir tíndu lauf sem voru pressuð. Auðvitað var svo farið í
indijánaleik og klifrað í trjánum eins og apakettir. Seinna skoðuðu
krakkarnir laufin sem þeir tíndu í víðsjá og unnu ýmis verkefni í
tengslum við það. Þetta var voða gaman og tókst vel. Krakkarnir skoðuðu
svo auðvitað allar flugur og fiðrildi í víðsjánni sem þeir fundu í
gluggasillum bekkjarstofunnar ;-)
Smellið á myndirnar til að sjá
fleiri myndir.
Kveðja Hrefna Ósk |
 |
19.
október 2010
Matseðill
5.
október 2010
Óvitinn
|
Nemendur í fjölmiðlavali eru búnir að setja nýjar fréttir inn á síðuna
sína. Þar má meðal annars lesa um Íþróttadaginn, landsmót Samfés,
barnaþrælkun og margt fleira. Smellið á myndina hér fyrir neðan eða á
hnappinn hér til vinstri og þá opnast fréttasíðan
Óvitinn. |
|
 |
|
Bergþóra, Kristófer, Þórunn, Árný, Halla, Hjálmar,
Friðrik, Elínborg, Maggý, Benni, Íris og Alexandra |
27.
september 2010
Starfsdagur
|
Föstudagurinn 1. október er starfsdagur og því engin kennsla þann dag. |
Íþróttadagur 30. september 2010
Dagskráin hefst kl. 8:00 á Norræna skólahlaupinu þar sem nemendur og
kennarar velja sér vegalengd við hæfi, þ.e. 2,5 km eða 5 km. Skráning
í 5 km hlaup er fyrirfram hjá umsjónarkennara vegna tímatöku.
Áhersla er lögð á að allir séu með og hver og einn hlaupi á sínum hraða.
Allir hafi endurskinsmerki og klæði
sig vel (muna eftir húfu og vettlingum).
Að loknu hlaupi hefst dagskrá í íþróttasal.
Dagskrá í íþróttahúsinu:
a) Stöðvar í sal og á pöllum: Meðal annars verður
keppt í:
Boccia:
Allir með sem vilja.
Skráning hjá
umsjónarkennara.
Uppstökkskeppni:
Allir með sem vilja. Skráning á staðnum.
Fitnessbraut: 5. - 10.
bekkur. Skráning á staðnum. Tímataka.
Klifurkeppni: 1. –
4. bekkur. Skráning á staðnum. Tímataka.
Pílukastkeppni:
Allir sem vilja. Skráning á staðnum.
Hittnikeppni í
körfubolta: Allir sem vilja. Skráning á staðnum.
b)
Bekkjarkeppni
1. - 4. bekkur:
Þrautaboðhlaup. Allir með.
5. – 7. bekkur og 8. - 10.
bekkur: Dodgeball
Skráning hjá
umsjónarkennara.
Strákar og stelpur saman í
liði. Átta inná í einu, frjálsar skiptingar, hver leikur er að hámarki
5 mín.
ATH leyfilegt er að
senda fleiri en 1 lið úr hverjum bekk.
c)
Kappleikur: Kennarar taka á móti 10. bekkingum í einhverri
skemmtilegri íþróttagrein.
d) Einhver
skemmtilegur leikur í lokin ef tími vinnst til – Öllum heimil þátttaka.
ATH!!! Dagskráin stendur
yfir frá kl. 8:00 - 12:15 og engin kennsla er eftir hádegi. Gott
er að hafa mjög gott nesti með þennan dag (hinir hefðbundnu drykkir
verða seldir á svæðinu).
Hádegismatur verður á sama
tíma og venjulega og að honum loknum lýkur skóladegi.
Foreldrar og aðrir gestir eru
velkomnir.
Góða skemmtun!!
Íþróttakveðja,
Erla og Berglind
Íþróttakennarar
|
6.
september 2010
Kynningarkvöld
|
Hinir
árlegu kynningarfundir verða haldnir dagana 8. og 9. sept. nk.
Miðvikudagur, 8. september
Kynningarkvöld fyrir foreldra 6. - 10. bekkjar
Kl. 19:30 í fundarherbergi í norðurenda Íþróttamiðstöðvar
- gengið inn beint á móti Smárabæ.
Dagskrá:
1.
Mentor - Upprifjun og kynning á Mentor,
samskipta- og upplýsingaforriti skólans - Hvernig geta foreldrar nýtt
sér Mentor sem best og hvaða upplýsingar er þar að finna.
2.
Foreldrafélagið - Kynning á starfi
félagsins.
Kl. 20:15 í heimastofum viðkomandi bekkja.
Dagskrá: Foreldrar hitta umsjónarkennara barna sinna og
farið verður yfir skólastarf vetrarins.
Að loknum fundum er hægt að hitta skólastjórnendur í
tölvustofu (Nýi skóli efri hæð) ef foreldra vantar nýjan aðgang að
Mentor og eins ef einhverjir vilja fá frekari kennslu á forritið.
Fimmtudagur, 9. september:
Kynningarkvöld fyrir foreldra 1. – 5. bekkjar.
kl. 19:30
Sama dagskrá og 8. september og því geta þeir foreldrar
sem eiga börn á báðum skólastigum komið kl. 20:15 annan daginn.
Mikilvægt er að allir nemendur eigi a.m.k. einn fulltrúa
á þessum fundum.
Skólastjóri.
|
2.
september 2010
Haustganga unglingadeildarinnar 2010
|
Þriðjudaginn 31. ágúst fóru unglingarnir í Blönduskóla í gönguferð með
umsjónarkennurum sínum. Er þetta annað árið sem farið er í svona ferð, í
fyrra var gengið á Spákonufell. Að þessu sinni var gengið upp frá
Ystagili í Langadal og sem leið lá upp í Vatnadal. Nokkur hress ungmenni
úr hópnum fóru svo lengra upp og gengu lengra upp á fjallið þar til þau
sáu yfir í Sauðadal á Laxárdal.
Var
gengið í blíðskaparveðri og sást vel yfir heimahagana ofan af
Björnólfsstaðahnjúkum og svo auðvitað ofan af Langadalsfjallinu.
Skemmtu
allir sér hið besta og ekki spillti góður félagsskapur fyrir.
Eftir
gönguna var haldið í Húnaver þar sem allir hámuðu í sig hamborgara, fóru
í leiki og hlustuðu á sögur fram yfir miðnættið.
Á
miðvikudagsmorgun liðkaði hópurinn sig svo til og gekk inn að Þverárdal
í sól og blíðu. Var ekki annað að sjá á hópnum en að ferðin hafi
heppnast vel og heyrðist jafnvel umræða um hvort ekki væri möguleiki á
að hafa svona gönguferðir oftar á skólaárinu.
Kennararnir vilja nota tækifærið og þakka þeim foreldrum sem voru svo
góðir að keyra og sækja í þessari ferð. Án aðstoðar ykkar væri þetta
ekki hægt. Þá er líka rétt að þakka unglingunum fyrir ánægjulega og
lærdómsríka samveru.
|
|
 |
20. ágúst 2010
Hagnýtar upplýsingar
11. ágúst 2010
Skólasetning
|
Blönduskóli verður settur föstudaginn 20. ágúst
næstkomandi kl. 11:00 í Blönduóskirkju.
Foreldrar eru hvattir til þess að koma með börnum sínum. Að lokinni
skólasetningarathöfn munu nemendur hitta umsjónarkennara sína og fá
afhentar stundatöflur.
Kennsla
í 2.-10. bekk hefst samkvæmt stundaskrá mánudaginn 23. ágúst.
Nemendur í 1. bekk verða boðaðir til viðtals með forráðamönnum
mánudaginn 23. ágúst og hefja nám samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 24.
ágúst.
Þeir
foreldrar sem eiga eftir að skrá börn sín í skólann eru beðnir um að
gera það sem fyrst hjá skólastjóra.
Halla
Bernódusdóttir verður á skóladagheimilinu 20. ágúst strax að lokinni
skólasetningu til kl. 13:00 og veitir upplýsingar og tekur niður
pantanir vegna lengdrar viðveru, sem boðið er upp á fyrir nemendur í
1.-4. bekk. Nauðsynlegt er að þeir foreldrar sem hyggjast nýta sér þessa
þjónustu skrái börn sín þennan dag. Hægt er að nálgast upplýsingar um
skóladagheimilið á heimasíðu skólans. Einnig er hægt að senda skráningu
á hallab@blonduskoli.is og verða þær skráningar að berast eigi síðar en
20. ágúst.
Skólastjóri
|
2. júní 2010
Skólaslit
|

Nemendur 10. bekkjar ásamt umsjónarkennara |
|
Kæru
útskriftarnemar,
við
óskum ykkur til hamingju með þennan mikilsverða áfanga í lífi ykkar. Við
viljum einnig þakka ykkur samfylgdina og óska ykkur alls hins besta í
framtíðinni.
Einnig
þökkum við foreldrum útskriftarnema fyrir gott samstarf í gegnum árin.
Starfsfólk
Grunnskólans á Blönduósi
Starfsfólk Grunnskólans á
Blönduósi þakkar öllum nemendum og foreldrum þeirra fyrir ánægjuleg
samskipti á skólaárinu og vonar að þið njótið sumarsins. Hittumst hress
og endurnærð í haust.
Skólasetning verður 20.
ágúst nánar auglýst síðar. |
31. maí 2010
Útihátíð og skólaslit
|
Vorhátíð
og skólaslit fara fram þriðjudaginn 1. júní.
Vorhátíðin verður með hefðbundnu sniði og hefst kl. 11:00 og lýkur
um kl. 13:00.
Skólaslit Grunnskólans á Blönduósi fara fram í bíósal
Félagsheimilisins á Blönduósi Þriðjudaginn 1. júní kl. 18:00.
Skólastjórnendur |
Óskilamunir
|
Kæru
foreldrar/forráðamenn
Þeir sem eiga eftir
að koma og athuga hvort þeir eigi ekki eitthvað í óskilamunum eru beðnir
um að gera það eins fljótt og hægt er. Mjög mikið er i óskilum eftir
veturinn og viljum við nota tækifærið og hvetja ykkur til að merkja föt
barnanna.
Einnig eiga
einhverjir eftir að taka listgreina-möppur heim. Allt þetta er hægt að
nálgast á 1. hæð í „Nýja skóla“.
Kveðja
starfsfólk skólans |
26. maí 2010
Fundarboð
|
Til nemenda í 7., 8. og 9. bekk og foreldra þeirra!
Boðað er til fundar í Grunnskólanum á Blönduósi mánudaginn 31. maí kl.
17:15
Efni fundarins:
Kynning á valgreinum sem í boði verða skólaárið 2010-2011
Fundurinn fer fram í stofu 5.
Gott er að vera búinn
að skoða valgreinabækling sem þið finnið
hér
Með kveðju
Sigríður Bjarney
Aadnegard aðstoðarskólastjóri
|
26. maí 2010
Hreinsun á skólalóðinni
|
Nemendur í unglingadeildinni tóku
sig til í dag og sópuðu og týndu rusl í kringum skólann sinn.
Í dag er vorsýning og svo verður
kosið í skólanum á laugardag og því mikilvægt að sé hreinlegt og fínt.
Krakkarnir stóðu sig alveg
sérstaklega vel og líta nýju tröppurnar alveg einstaklega vel út svona
nýsópaðar.
Nú er um að gera að drífa sig á
vorsýninguna til að sjá verk nemenda sem eru alveg einstaklega
fjölbreytt og fín í ár.
Myndir frá vordögum
koma jafnt og þétt inn á myndavefinn. |
 |
20. maí 2010
Vorsýning
Sýning á verkum nemenda, sem þeir hafa unnið í vetur,
fer fram í „Nýja” skóla
miðvikudaginn 26. maí, frá kl. 17:00-19:00.
Allir hjartanlega velkomnir
Nemendur og starfsfólk
Grunnskólans á Blönduósi
|
18. maí 2010
Fréttir úr 1. bekk
|
Mánudaginn
17.maí fékk 1. bekkur góða heimsókn. Jóhannes Þórðarson kom færandi
hendi og færði hverjum nemanda reiðhjólahjálm.
Allir voru
mjög glaðir og þökkuðu kærlega fyrir sig.
Jóhannes
kemur á vegum Kiwanishreyfingarinnar, sem hefur sinnt því mikilvæga
hlutverki undanfarin ár, að gæta þess að öll börn í fyrstu bekkjum
grunnskóla eigi hjálm, sér til verndar. |
 |
3. maí 2010
Fjölgun í skólanum
|
Í dag og gær
fjölgaði mjög í Grunnskólanum á Blönduósi þegar 12 hænuungar klöktust úr
eggjum. Halla Björg Bernódusdóttir á skóladagheimilinu var búin að vera
með eggin í útungunarvél í þrjár vikur og börnin fylgst spennt með
ferlinu allan þann tíma.
Nú var svo
komið að því að ungarnir birtust.
Höllu hefur
dreymt um að gera þetta í mörg ár og nú er þessi draumur loks að rætast.
Nemendur
grunnskólans njóta svo góðs af ævintýraþrá Höllu því þeim býðst
fljótlega að koma og „heimsækja“ ungana á skóladagheimilið.
Ungarnir eru
allir af gamla íslenska hænsnakyninu og eru einstaklega litskrúðugir og
fallegir. Þeir eiga svo bókað öruggt heimili þegar skólinn fer í
sumarfrí.
Það eru spennandi tímar framundan hjá nemendum í skólanum við að
fylgjast með ungunum dafna. huni.is |
 |
30. apríl 2010
Tónlist fyrir alla
|
Góðir gestir heimsóttu okkur í morgun, það voru hinir landsþekktu
tónlistamenn
Björn Thoroddsen gítarleikari og Gunnar Hrafnsson
kontrabassaleikari. Tónleikarnir eru á vegum verkefnisins „Tónlist
fyrir alla“
Úr
kynningu tónleikanna: „Í þessari dagskrá fara þeir félagar um víðan
völl í tónlistinni, allt frá flugi „Óðu býflugunnar“ til Michael
Jacksons. Þetta er tónlistarveisla með gleðina í fyrirrúmi en á bak við
býr að lauma ýmsum sannindum tónlistarinnar að áheyrendum: Hver
takturinn er og hvernig hann getur breyst fyrirvaralaust og hvernig
tónlistin túlkar hlátur og grát. Á tónleikunum eru hlustendur virkjaðir
til þátttöku með söng, klappi og hreyfingum en markmiðið er að þeir
gleymi sér í skemmtun og taki með sér fróðleik og ánægju frá
tónleikunum“.
Allir nemendur skólans sóttu tónleikanna og skemmtu sér mjög vel, töluðu
listamennirnir um að nemendur hefði verið skemmtilegir og gaman að spila
fyrir þá.
Þökkum við þeim félögum fyrir frábæra skemmtun. |
 |
23. apríl 2010
Skólamáltíðir
|
Pöntunarblað fyrir maí er komið á netið.
Þess má geta að nemendur 8. bekkjar gerðu matseðilinn fyrir maí. |
23. apríl 2010
Sumarskemmtun
|
Myndir frá
sumarskemmtuninni eru komnar á myndasíðuna.
Pöntunarblað fyrir maí er komið á netið. |
14. apríl 2010
Sumarskemmtun
|
Hin árlega sumarskemmtun Grunnskólans á Blönduósi
verður haldin sumardaginn fyrsta, 22. apríl.
Nemendur í 1.-7. bekk sjá um öll skemmtiatriði
undir leiðsögn kennara.
Skemmtunin hefst kl. 13:30.
Aðgöngumiðinn kostar kr. 1000.
Ókeypis aðgangur er fyrir börn fædd 1997 (7. bekk) og yngri.
Með sumarkveðju, starfsfólk Grunnskólans á Blönduósi.
|
 |
Skíðaferð
|
Myndir úr skíðaferð 7. - 10. bekkjar eru komnar á netið.
Ferðin gekk í alla staði mjög vel Óli, Berglind og Mummi voru
fararstjórar og voru óþreytandi við að aðstoða skíðafólkið.
Fimmtudaginn 15. apríl fara svo 5. og 6. bekkur
Hér á myndinni til hægri má sjá hvað Óli íþróttakennari stóð sig vel. |
 |
30. mars 2010
Lok grunnskóla, upphaf
framhaldsskóla
|
Mánudaginn 22. mars var góð mæting á
fund sem haldinn var fyrir foreldra og nemendur í 9. og 10. bekk.
Markmið fræðslufundarins var að styðja foreldra og nemendur og auðvelda
þeim þær ákvarðanir sem nemendur standa frammi fyrir þegar
grunnskólagöngu lýkur. Jafnframt að kynna fyrir þeim inntökuskilyrði í
framhaldsskóla, umsóknarreglur og áfangakerfi.
Á fundinn mættu einnig góðir gestir
úr Skagafirði en Þorkell V. Þorsteinsson aðstorðaskólameistari og
Ingileif Oddsdóttir námsráðgjafi komu frá Frjölbrautaskóla Norðurlands
vestra ásamt fulltrúum nemendaráðs. |
 |
Fram, fram fylking
|
Miðvikudaginn 24. mars komu
foreldrar og nemendur 6. bekkjar, ásamt umsjónarkennara og skólastjóra,
saman í skólanum og héldu útgáfuteiti.
Tilefnið var útgáfa bæklings sem er
afrakstur samvinnuverkefnis foreldra og nemenda bekkjarins og inniheldur
niðurstöður úr hópavinnu þar sem unnið er með ýmis málefni sem nemendum
og foreldrum finnst skipta hvað mestu máli í leik og starfi.
Nemendur, sem áður í vinnuferlinu
höfðu bakað vöfflur og boðið upp á kaffi og með því, skoruðu á foreldra
varðandi veitingar í teitið og að sjálfsögðu brugðust allir vel við og
var af nógu að taka.
Anna Margret Valgeirsdóttir
stjórnaði síðan nokkrum leikjum af alkunnri röggsemi og tóku allir að
sjálfsögðu þátt bæði nemendur og foreldrar.
|
 |
26. mars 2010
Reyklaus bekkur
|
Nemendur 8. bekkjar hafa unnið ötullega að verkefni á vegum
Lýðheilsustöðvar; Reyklaus bekkur.
Þeir bjuggu til slagorðið Reyklaus = Heill haus og létu útbúa húfur með
slagorðinu á.
Um þriðjungur allra nemenda skólans pantaði hjá þeim húfur og fékk með
þeim bækling með upplýsingum um skaðsemi reykinga. Þessir krakkar eru
greinilega stoltir af því að vera reyklausir – og er það vel.
Enn eiga nokkrir eftir að sækja sínar húfur og gott væri að það yrði
gert sem fyrst. Hægt er að nálgast húfurnar í skólanum, t.d. hjá
skólastjórnendum á mánudag og þriðjudag í dimbilvikunni.
Á
myndinni má sjá hluta 8. bekkjar með húfurnar góðu. |
 |
19. mars 2010
Framsagnarkeppni grunnskólanna í Húnavatnsþingi
|
Framsagnarkeppni grunnskólanna í Húnavatnsþingi sem tileinkuð er Grími
Gíslasyni, fréttaritara, hestamanni og bónda frá Saurbæ í Vatnsdal, fór
fram í félagsheimilinu Fellsborg á Skagaströnd 18. mars. Keppendur voru
7. bekkingar úr Höfðaskóla, grunnskólanum á Blönduósi, Húnavallaskóla og
grunnskóla Húnaþings Vestra. Keppnin var hörð og jöfn en dómnefnd,
sem í sátu meðal annars tvö börn Gríms Gíslasonar, varð að lokum sammála
um að Lilja Karen Kjartansdóttir úr grunnskóla Húnaþings Vestra hefði
staðið sig best. Albert Óli Þorleifsson varð í öðru sæti og Benedikt A.
Ágústsson í því þriðja. Báðir eru strákarnir úr grunnskólanum á
Blönduósi. Hlutu sigurvegararnir peningaverðlaun frá Sparisjóðnum á
Hvammstanga auk viðurkenningarskjals. Lilja Karen mun varðveita
farandskjöld, sem Grímur Gíslason gaf til keppninnar, fram að næstu
keppni að ári. Allir keppendurnir fengu síðan tvenn bókaverðlaun.
Skólarnir í Húnavatnsþingi notuðu tækifærið og heiðruðu Þórð Helgason,
formann dómnefndar og einn af upphafsmönnum stóru upplestrarkeppninnar
og færðu honum örlítinn þakklætisvott fyrir hugsjónastarf sitt í þágu
skólanna og íslenskunnar gegnum árin.
|
 |
 |
Skólamáltiðir
15. mars 2010
Bingó - bingó
|
Þriðjudaginn 16. mars 2010, kl. 19:00, heldur 10. bekkur
sitt árlega bingó í Félagsheimilinu Blönduósi.
10. bekkur Grunnskólans á Blönduósi
Athugið að bingóið hefst kl. 19:00 en ekki 20:00 eins og auglýst var í
Glugganum.
|
 |
10. mars 2010
Framsagnarkeppni grunnskólanna í Húnavatnsþingi
|
Fimmtudaginn 18. mars verður lokahátíð „Framsagnarkeppni grunnskólanna í
Húnavatnsþingi“ haldin í Fellsborg á Skagaströnd kl. 16:00.
Á hátíðinni munu nemendur í 7. bekk, sem valdir hafa verið úr skólum
byggðarlagsins, lesa brot úr skáldverki og ljóð. Að lokum mun dómnefnd
velja þrjá bestu upplesarana og veita verðlaun.
Skáld keppninnar að þessu sinni eru Ármann Kr. Einarsson og Þorsteinn
frá Hamri. Keppendur munu lesa úr verkum Þeirra, sem og ljóð að eigin
vali.
Tilgangur keppninnar er að glæða tilfinningu og metnað húnvetnskra
grunnskólanema fyrir íslensku máli og framsögn.
Forkeppni fór fram í hverjum skóla fyrir sig þar sem valdir voru þrír
keppendur sem fulltrúar hvers skóla.
Þeir keppendur sem taka þátt í keppninni fyrir hönd Grunnskólans á
Blönduósi eru:
Halldór Skagfjörð Jónsson, Albert Óli Þorleifsson og Benedikt Axel
Ágústsson.
Dómarar voru þau Guðjón E. Ólafsson, Kristín Guðjónsdóttir og Kolbrún
Zophoníasdóttir.
|
 |
26. febrúar 2010
Árshátíð 2010
|
Hin
árlega árshátíð Grunnskólans á Blönduósi
verður haldin föstudaginn 26.
febrúar í Félagsheimilinu á Blönduósi.
Húsið opnar kl.
19:30.
Árshátíðin hefst kl. 20:00 og lýkur
kl. 01:00.
Dagskrá hefst með ávarpi
formanns nemendaráðs
Margrétar Hildar
Hrafnkelsdóttur,
næst verður sýndur
söngleikurinn Kræbeibí í leikstjórn Jófríðar Jónsdóttur.
Eftir leikritið verða glæsilegar
kaffiveitingar og svo verður hin árlega og frábæra
Blönduvision sem allir bíða spenntir eftir.
Undirleikur er í höndum nokkurra drengja úr elstu bekkjum skólans.
Eins og venjulega verður
happdrætti.
Að
lokinni skemmtidagskrá fer fram
dansleikur þar sem hinn frábæri plötusnúður DJ Doddi Mix
spilar fyrir dansi.
Miðaverð
6.
bekkur og eldri kr. 2.000.-
1.
– 5. bekkur kr. 1.000.-
6
ára og yngri fá frítt.
Vonandi sjá sem flestir sér fært að mæta.
|
 |
15. febrúar 2010
Skólamáltíðir
15. febrúar 2010
Grímuball
|
Miðvikudaginn 17.
febrúar 2010 verður hið árlega grímuball haldið í Félagsheimilinu.
Dagskrá:
19:00 Húsið opnar.
19:30 Marsering.
Verðlaunaafhending.
Kötturinn sleginn úr
tunnunni.
21:15 Dansi lýkur.
Aðgangseyrir kr. 300
fyrir grímuklædda.
kr.
800 fyrir aðra.
Frítt fyrir yngri en 6 ára.
Nemendur, foreldrar
og aðrir bæjarbúar eru hvattir til að koma grímuklæddir. Veitt verða
verðlaun fyrir frumlega og fallega búninga og góðan leik.
Skólastjóri.
Myndir komnar á vefinn |
 |
22. janúar 2010
Skólamáltíðir
18. janúar 2010
Forvarnir
|
Við minnum á
foreldrafundinn fyrir foreldra í 8. - 10. bekk 19. janúar
kl. 19:30 í Félagsheimilinu.
Æskilegt er
að hver nemandi eigi einn fulltrúa á þeim fundi. Foreldrum 7. bekkjar
er velkomið að koma á þennan fund einnig þó svo efnið sé
frekar í tengslum við það fræðsluefni sem eldri nemendur fá.
Um er að ræða forvarnarfræðslu á vegum Maritafræðslunnar. Maríta á
Íslandi er forvarnasvið Samhjálpar. Aðalverkefni er samstarf á vettvangi
forvarnafélagsins Hættu áður en þú byrjar er varðar fræðslu um skaðsemi
fíkniefna. Sjá frekari upplýsingar á vefnum
http://www.marita.is/ |
12. janúar 2010
Vitnisburður
|
Vitnisburðarblöð fara heim með nemendum föstudaginn 15.
janúar. Einkunnir verða aðgengilegar á Mentor þann sama dag. |
30. desember 2009
 |
Gleðilegt ár
og
takk fyrir það liðna.
Kennsla hefst
þriðjudaginn 5. janúar
samkvæmt stundaskrá.
Kveðja starfsfólk
Grunnskólans á Blönduósi
|
 |
|
Til umhugsunar
Því miður
verða slys á börnum í tengslum við flugelda um hver einustu áramót.
Flest þessara slysa verða hjá strákum og alvarlegustu slysin verða þegar
meðhöndla flugeldavörurnar á annan hátt en ætlast er til.
Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur undanfarin ár reynt að
sporna við þessum slysum með ýmsum hætti, svo sem flugeldagleraugum og
almennri fræðslu.
Miklu máli
skiptir að gera börnum grein fyrir þeim hættum sem fylgja því að að búa
til sínar eigin sprengjur, taka flugelda í sundur eða skjóta upp
flugeldum sem þau hafa ekki aldur til að gera.
Slysavarnafélagið Landsbjörg útbjó myndbandið Ekkert fikt
fyrir þremur árum. Markmiðið með myndbandinu er að gera börnum grein
fyrir alvarleika þessa fikts. Nemendur 5.,6. og 7. bekkjar hafa horft á
myndbandið og rætt saman um þá hættu sem skapast getur ef ekki er farið
eftir þeim reglum sem gilda.
Hægt
er að skoða myndbandið á síðu félagsins
http://www.landsbjorg.is |
Gjafir og heimsóknir í
desember
|
Fulltrúar
Landssambands slökkviliðs
–og sjúkraflutningamanna (LSS) heimsóttu nemendur 3. bekkjar og
fræddu þau um eldvarnir og færðu hverju barni ennisljós að gjöf.
Nemendum gafst einnig kostur á að taka þátt í getraun sem sambandið
stendur fyrir, dregið verður úr réttum lausnum á 112- deginum þann 11.
febrúar. Höfum við frétt af því að ennisljósin hafi komið að góðum notum
í rafmagnsleysinu á aðfangadag.
Á sama tíma
heimsóttu fulltrúar Lionshreyfingarinnar einnig 3. bekk og færðu
nemendum litabók en markmið bókarinnar er að virkja börnin sem
brunaverðir heimilanna og kynna þeim brunavarnir inni á heimilunum. |
 |
|
Nemendur 5.
bekkjar fengu að gjöf spilastokk frá Samhópnum. Á spilunum eru skilaboð
þar sem áhersla er lögð á gildi samverustunda fjölskyldunnar. Vill
hópurinn með því hvetja fjölskylduna til að verja sem mestum tíma
saman.Verkefnið er styrkt af Pokasjóði.
http://www.samanhopurinn.is |
 |
14. desember 2009
Litlu jólin föstudaginn 18. desember 2009
|
Dagskrá
14:00 Mæting í skólann
14:10 Gengið til kirkju
1. Hugvekja
2. Kór
3. Helgileikur - nemendur í 6. bekk
4. Kór
14:40 Jóladansleikur í íþróttasal
15:30 Litlu jól í stofum
16:30 Dagskrárlok
Nemendur eiga að hafa með sér smákökur og/eða kex og drykk. Gosdrykkir
eru leyfðir en ekki sælgæti. Nemendur þurfa einnig að koma með
sprittkerti og ílát undir það og litla jólagjöf. Miðað er við að gjöfin
kosti að hámarki kr. 500,-.
Foreldrar er hvattir til þess að taka þátt í þeirri dagskrá sem fram fer
í kirkjunni og íþróttasalnum.
Athygli er vakin á því að skóladagheimilið verður opið fyrir hádegi ef
þörf er á. Foreldrar eru vinsamlega beðnir um að láta vita í síðasta
lagi á miðvikudag ef þeir hafa áhuga á að nýta sér það.
Gleðileg jól!
Starfsfólk Grunnskólans á Blönduósi |
 |
|
 |
9. desember 2009
Skreytingardagur
|
Í dag var
hin árlegi skreytingardagur.
Dagurinn var mjög skemmtilegur. Hér var
bakað, föndrað, spilað og skreytt og gátu allir fundið eitthvað við sitt
hæfi. Ekki var að sjá annað en að allir hafi skemmt sér vel enda bara
skemmtilegir krakkar í þessum skóla. Smellið á myndina hér til hægri til
að sjá fleiri myndir.
Pöntunarblað fyrir janúar er komið á netið |
 |
20. nóvember 2009
Aðventudagur
foreldrafélags Grunnskólans á Blönduósi
|
Aðventudagur
foreldrafélags Grunnskólans á Blönduósi verður sunnudaginn 22. nóvember
frá kl. 13:00 – 16:00.
Dagskráin er
nokkuð hefðbundin en á staðnum verður hægt að kaupa ýmislegt föndur,
jólaskraut og piparkökur sem hægt er að skreyta á staðnum en einnig
verður boðið upp á tónlistaratriði í boði nemenda í Tónlistarskóla
A-Hún.
Aðventudagurinn er dagur fyrir alla fjölskylduna, líka afa, ömmu og
önnur viðhengi. Nemendur 10. bekkjar sjá um kaffisölu til fjáröflunar
fyrir bekkinn og spil verða í boði fyrir þá sem ekki eru í föndurstuði. |
 |
18.
nóvember 2009
Skólamáltíðir
Pöntunarblað fyrir desember er komið á netið.
16.
nóvember 2009
Heimsókn
| Bergvin Oddsson
spjallaði við nemendur 7. - 10. bekkjar um hvernig það er að vera
blindur. Íris Emma í 9. bekk hefur skrifað góða grein um heimsóknina en
greinina er að finna á
Óvitanum. Þar
má einnig lesa um undankeppni Stíls og um Æskulýðsballið í Borgarnesi. |
|
10. nóvember 2009
Óvitinn
5. nóvember 2009
Inflúensa
|
Foreldrar og forráðamenn athugið
• Veikist nemandi þannig að einkennin bendi til inflúensu, er honum
ráðlagt að halda sig heima í tvo daga eftir að hann er
orðinn hitalaus.
• Ekki er þörf á því að aðrir sem eru einkennalausir á heimili sjúklings
haldi sig heima.
• Hreinlæti skiptir mestu máli í að draga úr smithættu. Þar ber fyrst að
nefna handþvott og að fólk hafi á sér einnota pappírsþurrkur til að
hnerra eða hósta í.
• Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu sóttvarnalæknis og
almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra á
www.influensa.is. |
2. nóvember 2009
Vetrarfrí
|
 |
|
Minnum á vetrarfríið föstudaginn 6. nóvember og mánudaginn 9. nóvember. |
26. október 2009
Góðir gestir
|
Í tilefni af kynningarviku
Rauða krossins í
komu fulltrúar frá Rauða kross deildinni í Austur-Húnavatnssýslu í
heimsókn í Grunnskólann. Það voru þau Ingvi Þór, Einar Óli og Hafdís sem
mættu með hina ágætu Önnu og lítið dúkku-ungbarn í kennslustund hjá
unglingadeildinni. Þau sýndu unglingunum jafnframt fræðslumyndbönd og
leyfðu þeim að prófa að blása, hnoða og ná aðskotahlut úr hálsi
ungbarns.
Var ekki annað að sjá en unglingarnir væru áhugasamir og tilbúnir að æfa
réttu handtökin. |
 |
19. október 2009
Skólamáltíðir
12. október 2009
Tilkynning vegna gjaldskrárbreytinga
|
Bæjarráð samþykkti nýja gjaldskrá skólamáltíða á fundi sínum 2.
september sl. Bæjarstjórn staðfesti ákvörðun bæjarráðs á fundi 8.
september. Verð á máltíð skólaárið 2009-2010 fyrir börn í 1.-4. bekk
verður 348 kr. og fyrir börn í 5.-10. bekk 380 kr. Nýja
gjaldskráin tekur gildi 1. nóvember 2009.
Einnig hefur Mjólkursamsalan fellt niður afslætti til skóla og því
verðum við að hækka verð á léttmjólkinni og kókómjólkinni.
Frá og með 14. október kostar 1/4 l af léttmjólk kr. 35.-
og 10 miðar kr. 350,- og 1/4 l af kókómjólk kr. 90,- og 10 miðar kr.
900,- |
9. október 2009
Starfsdagur - Foreldraviðtöl
|
Mánudaginn 12. okt. er starfsdagur og þriðjudaginn 13. okt. verða
foreldraviðtöl. Kennsla fellur niður þessa daga. |
Leikhús
|
Í
morgun fóru nemendur 1.- 4. bekkjar ásamt nemendum leikskólans á
leiksýninguna ALLI NALLI OG TUNGLIÐ
Leiksýningin er byggð á sögum Vilborgar Dagbjartsdóttur og er flutt af
Möguleikhúsinu.
Alli Nalli og tunglið hlaut tilnefningu til Grímunnar, íslensku
leiklistarverðlaunanna, sem barnasýning ársins 2009
Leiksktjóri og höfundur leikgerðar Pétur Eggerz
Leikmynd og búningar Messíana Tómasdóttir
Tónlist Kristján Guðjónsson
Leikarar Alda Arnardóttir og Anna Brynja Baldursdóttir
Smellið á myndina til að sjá fleiri. |
 |
1. október 2009
Góð gjöf
|
Þessir hressu krakkar Karen Sól,
Júlía, Þórunn Erla og Pétur Arnar héldu tombólu í Samkaup í september og
færðu skólanum sínum ágóðan. Vildu þau að peningunum yrði varið í
tölvudót eða bækur á bókasafnið.
Viljum við skólastýrur þakka þeim kærlega fyrir þessa gjöf til skólans. |
 |
Textílmenntasmiðja á miðstigi
|
Nemendur á miðstigi eru að læra að prjóna
þessa dagana. Gengur prjónaskapurinn mjög vel og nýtur mikilla vinsælda.
Nokkrir nemendur voru að horfa á bíómynd og ákváðu að nýta tíman vel og
prjóna á meðan horft var. Í dag er svo komið að drengir gefa stúlkum
ekkert eftir í prjónaskap nema síður sé. Þetta vígi kvenna er að falla
ef ekki þegar fallið. |
 |
Upp, upp, upp á fjall...
Miðvikudaginn 2. september fór unglingadeildin í ferð uppá Spákonufell.
Við fórum frá skólanum og foreldrar sáu um að skutla hópnum. Við komum
um tvö leytið í skíðasálann þar sem við gistum og fórum þaðan á
golfvöllinn á Skagaströnd.Við lögðum af stað þaðan uppá fjallið kl.
hálfþrjú.
Ferðin upp fjallið var löng og erfið en ...(meira)
Munið að skoða
Óvitann
reglulega. |
 |
22.
september 2009
Íþróttadagur og heimsókn
menntamálaráðherra
|
Íþróttadagur Grunnskólans á Blönduósi verður haldinn fimmtudaginn 24.
september. Eins og ævinlega byrjar dagurinn kl 8:00 á Norræna
skólahlaupinu en að því loknu fara allir inn í Íþróttamiðstöð. Þar
verður mikið húllumhæ og eitthvað fyrir alla. Nánari dagskrá er að finna
hér.
Við
hvetjum foreldra til að koma og taka þátt í deginum með okkur.
Myndir
frá íþróttadeginum má finna
hér.
Fréttir af íþróttadeginum
má finna á hinum vinsæla
Óvita. |
 |
|
Katrín
Jakobsdóttir menntamálaráðherra mun heimsækja Grunnskólann á Blönduósi á
íþróttadaginn, þ.e. fimmtudaginn 24. september. Með henni í för verða
m.a. fulltrúar frá samtökunum Heimili og skóli. Heimsóknin er í tilefni
af Foreldraverðlaununum 2009 sem skólinn hlaut fyrir verkefnið „Tökum
saman höndum". Áætlað er að ráðherra og föruneyti komi í skólann um kl.
11:00.
|
 |
|
Skólamáltíðir
Athugið
pöntunarblað fyrir október er komið á netið. |
16.
september 2009
Flottir krakkar í 1. bekk
 |
 |
|
Nemendur 1. bekkjar voru í tíma hjá Berglindi í dag og stóðu sig allir
eins og hetjur. Hópnum var tvískipt og glímdu nemendur við bæði
saumaskap og orðaspil. Var ekki annað að sjá en allir skemmtu sér hið
besta en þeir gleymdu samt ekki að vanda sig. Þá var mikið spáð í stafi
orðanna sem unnið var með og í hvaða röð þeir ættu að koma.
Sannarlega efnilegir krakkar þarna á ferð.
Bestu kveðjur Berglind |
9.
september 2009
Óvitinn ekki lengur óvirkur
|
Óvitinn
er fréttasíða fjölmiðlavals og var búin til í fyrra um þetta leiti. Hann
birti fréttir og annað efni sem kom ekki bara frá fjölmiðlavali heldur
líka unglingadeildinni og stefnum við á að halda því áfram. Óvitinn var
hugmynd frá nemendum fjölmiðlavals í fyrra og mun vera hluti af
fjölmiðlavali næstu árin allavegana.
En nú
er Óvitinn aftur orðinn virkur svo kennarar, foreldrar og aðrir
áhugasamir geta fylgst grannt með skólalífinu og öðru skemmtilegu sem
birtist á vefnum. En hægt er að nálgast Óvitann í gegnum vefsíðu
grunnskólans vinstra megin undir Óvitinn.
Fjölmiðlaval |
3.
september 2009
Kynningarkvöld
|
Hinir
árlegu kynningarfundir verða haldnir dagana 8. og 9. sept. nk.
Þriðjudagur, 8. september
Kynningarkvöld fyrir foreldra 6. - 10. bekkjar
Kl.
19:30 í stofu 9 (Nýi skóli neðri hæð).
Dagskrá: Starf skólahjúkrunarfræðings og kynning á
viðbragðsáætlun vegna
inflúensu A(H1N1).
Kl.
20:00 í heimastofum viðkomandi bekkja.
Dagskrá: Foreldrar hitta umsjónarkennara barna sinna og farið verður
yfir skólastarf vetrarins.
Kl.
21:00 í tölvustofu (Nýi skóli efri hæð)
Dagskrá: Kennsla á Mentor, samskipta- og upplýsingaforrit skólans.
Miðvikudagur, 9. september:
Kynningarkvöld fyrir foreldra 2. – 5. bekkjar.
kl.
19:30
Sama
dagskrá og 8. september og því geta þeir foreldrar sem eiga börn á báðum
skólastigum komið kl. 20:00 annan daginn.
Miðvikudagur, 9. september:
Skólafærninámskeið fyrir foreldra barna í 1. bekk (fyrri hluti)
kl.
18:00
Dagskrá
auglýst sérstaklega.
Mikilvægt er að
allir nemendur eigi a.m.k. einn fulltrúa á þessum fundum.
Skólastjóri.
|
20. ágúst 2009
Hagnýtar upplýsingar
12. ágúst 2009
Skólasetning
|
Grunnskólinn á Blönduósi verður settur fimmtudaginn 20. ágúst
næstkomandi kl. 11:00 í Blönduóskirkju.
Foreldrar eru hvattir til þess að koma með börnum sínum. Að lokinni
skólasetningarathöfn munu nemendur hitta umsjónarkennara sína og fá
afhentar stundatöflur.
Kennsla
í 2.-10. bekk hefst samkvæmt stundaskrá föstudaginn 21. ágúst.
Nemendur í 1. bekk verða boðaðir til viðtals með forráðamönnum
föstudaginn 21. ágúst og hefja nám samkvæmt stundaskrá mánudaginn 24.
ágúst.
Þeir
foreldrar sem eiga eftir að skrá börn sín í skólann eru beðnir um að
gera það sem fyrst hjá skólastjóra.
Halla
Bernódusdóttir verður á skóladagheimilinu 20. ágúst strax að lokinni
skólasetningu til kl. 13:00 og veitir upplýsingar og tekur niður
pantanir vegna lengdrar viðveru, sem boðið er upp á fyrir nemendur í
1.-4. bekk. Nauðsynlegt er að þeir foreldrar sem hyggjast nýta sér þessa
þjónustu skrái börn sín þennan dag. Hægt er að nálgast upplýsingar um
skóladagheimilið á heimasíðu skólans. Einnig er hægt að senda skráningu
á hallab@blonduskoli.is og verða þær skráningar að berast eigi síðar en
20. ágúst.
Skólastjóri
|
4.
júní 2009
Foreldraverðlaunin 2009
|
Í dag þann 4. júní
veittu
Heimili og skóli – landssamtök foreldra hin árlegu
„Foreldraverðlaun“. Leitað var eftir tilnefningum um einstaklinga,
fyrirtæki, stofnanir, sveitarfélög eða skóla á leik-. grunn- og
framhaldsskólastigi sem stuðlað hafa að árangursríkum leiðum eða
verkefnum til að efla samstarf foreldra og kennara
Grunnskólinn á Blönduósi var
tilnefndur fyrir verkefnið "Tökum saman höndum"
sem er samstarfsverkefni fræðslustjóra Guðjóns E. Ólafssonar, skólans,
nemenda á unglingastigi og foreldra þeirra.
Markmið verkefnisins er að bæta líðan og
námsárangur nemenda í unglingadeild grunnskólans á Blönduósi.
Það
er okkur sönn ánægja að tilkynna að Grunnskólinn á Blönduósi og
Fræðsluskrifstofa A- Húnavatnssýslu
hlutu
„Foreldraverðlaunin“ að þessu sinni og erum við öll ákaflega stolt
og ánægð með þessa miklu viðurkenningu.
Í ár bárust 38
tilnefningar og auk foreldraverðlauna voru auk þess veitt hvatningarverðlaun fyrir
verkefni sem dómnefnd telur að muni skila árangri til framtíðar þau
verðlaun hlaut samstarfsverkefni
Kópavogsskóla og
Gjábakka. Markmið verkefnis er
að brúa bilið á milli kynslóða. Verðlaunin
dugnaðarforkur komu í hlut
Bjargar Þorvaldsdóttur
deildarstjóra sérkennslu við Nesskóla Neskaupsstað. Óskum við þeim til
hamingju með verðlaunin. |
 |
3.
júní 2009
Skólaslit
|

10. bekkur með Önnu Margreti umsjónarkennara (á
myndina vantar Stefán Hafsteinsson)
|
|
Kæru útskriftarnemar,
við óskum ykkur til hamingju með þennan mikilsverða áfanga í
lífi ykkar. Við viljum einnig þakka ykkur samfylgdina og óska
ykkur alls hins besta í framtíðinni.
Einnig þökkum við foreldrum útskriftarnema fyrir gott samstarf í
gegnum árin.
Starfsfólk Grunnskólans á Blönduósi |
Starfsfólk Grunnskólans á Blönduósi þakkar öllum nemendum og foreldrum
þeirra fyrir ánægjuleg samskipti á skólaárinu og vonar að þið njótið
sumarsins. Hittumst hress og endurnærð í haust. |
28.
maí 2009
Skólalok
|
Nú
fer að líða að lokum þessa skólaárs, þessa viku hafa staðið yfir
svokallaðir vordagar þar sem aðaláhersla er lögð á útikennslu, að fræða
nemendur um nánasta umhverfi og tengja það námsefni vetrarins.
Vorhátíð
og skólaslit fara fram þriðjudaginn 2. júní.
Vorhátíðin verður með hefðbundnu sniði og hefst kl. 11:00 og lýkur
um kl. 13:00.
Skólaslit Grunnskólans á Blönduósi fara fram í bíósal
Félagsheimilisins á Blönduósi Þriðjudaginn 2. júní kl. 18:00.
Skólastjórnendur |

Kennarar og nemendur takast á.
Nýjar
myndir í myndaalbúmi |
26.
maí 2009
Skóladagatal 2009 - 2010
|
Skóladagatal skólaársins 2009 - 2010 hefur verið samþykkt.
Smellið á hnappin hér til hægri til að skoða
|
 |
Valgreinar 2009 - 2010
|
Til nemenda í 7., 8. og 9. bekk og forráðamanna þeirra!
Boðað
er til fundar í Grunnskólanum á Blönduósi fimmtudaginn 28. maí kl.
17:15.
Efni
fundarins:
Kynning
á valgreinum sem í boði verða skólaárið 2009 - 2010.
Fundurinn
fer fram í stofu 5.
Smellið
á valgreinar (hér til hægri) til að skoða þær greinar sem í boði verða. |
 |
21.
maí 2009
Fame
|
Aukasýning
verður á Söngleiknum Fame sem nemendur í 8. – 10. bekk Grunnskólans á
Blönduósi settu upp árshátíð skólans í vetur.
Sýningin
verður föstudaginn 22. maí í Félagsheimilinu á Blönduósi og hefst hún
kl. 20.
Fame er
söngleikur um unglinga í listaskóla. Söngleikurinn gerist í Reykjavík
árin 2003 – 2004 nánar til tekið í hinum rómaða Listaskóla Íslands.
Söngleikurinn fjallar um unglingana í skólanum, ástir þeirra og listir.
Ýmislegt gerist, gott og slæmt, sem unglingarnir þurfa að takast á við.
Fame er nokkurs konar rómantískur gamanleikur um áhyggjuefni unglinga.
Leikarar eru
nemendur úr 8., 9. og 10. bekk.
Leikstjóri
er Jófríður Jónsdóttir.
Danshöfundur
er Sigríður Ragndís Hilmarsdóttir.
Hljóð-,
ljósa- og sviðsmenn eru nemendur úr 8., 9. og 10. bekk.
Aðgangur er 1000 kr. fyrir þá sem búnir eru með grunnskóla, 500 kr.
fyrir grunnskólanemendur og ókeypis er fyrir 6 ára og yngri.
|
 |
14.
maí 2009
Próftafla og vorsýning
Sýning á verkum nemenda sem þeir
hafa unnið í vetur fer fram í „nýja” skóla
fimmtudaginn 21. maí, uppstigningardag, frá kl.
15:00-18:00.
Stutt tískusýning verður í upphafi sýningartímans þar
sem nemendur munu sýna fatnað sem þeir hafa saumað í vetur.
Dagurinn er tilvalinn til að njóta listaverka bæði
yngri og eldri kynslóðarinnar því að á sama tíma er árleg sýning
félagsstarfs aldraðra í Hnitbjörgum.
Allir hjartanlega velkomnir
Nemendur og starfsfólk
Grunnskólans á Blönduósi
|
|
Próftafla
|
|
28.
apríl 2009
Aðalfundur Foreldrafélags Grunnskólans á
Blönduósi
|
Aðalfundur Foreldrafélags Grunnskólans á Blönduósi verður haldinn
miðvikudaginn 6. maí 2009 kl. 20 í Grunnskólanum.
Dagskrá:
-Lagabreytingar
-Venjuleg aðalfundarstörf
-Kosning stjórnar
Stjórnin
Stjórn foreldrafélagsins þakkar þeim foreldrum sem sáu sér fært að mæta
á fyrirlestur Hafþórs Barða Birgissonar
"Vakningarverkefni á vegum Heimilis og skóla um jákvæða og örugga notkun
barna og unglinga á netinu".
Einnig þakkar stjórnin
Hafþóri Barða fyrir góðan og fræðandi fyrirlestur.
|
 |
24.
apríl 2009
Fyrirlestur
|
Vakningarverkefni á vegum Heimilis og skóla um jákvæða og örugga notkun
barna og unglinga á netinu
Fyrirlestur í Grunnskólanum á Blönduósi mánudaginn 27. apríl kl.
19:30 og í Höfðaskóla á Skagaströnd sama dag kl. 17:30.
Internetið er frábær upplýsingaveita og tæki til samskipta en þar felast
einnig ýmsar hættur sem mikilvægt er fyrir foreldra að þekkja og gera
sér grein fyrir.
Til
að foreldrar geti talað við börnin sín og leiðbeint þeim um öryggi og
góða hegðun þurfa þeir að þekkja það umhverfi sem þeir eru í dags
daglega. Leiðbeiningar um “umferðarreglur” á netinu eru því orðinn
einskonar hluti af uppeldishlutverkinu.
Á
fyrirlestrinum mun verða farið í gegnum bloggsíður, tölfræðilegar
upplýsingar, rafrænt einelti, netið og friðhelgi einkalífsins, netvini,
nettælingu og aðeins rætt um kynslóðabilið, þ.e. hvers vegna mamma og
pabbi skilja ekki tölvunotkun nemendanna.
Lögð
verður áhersla á almenn samskipti á netinu, að allt sem þú gerir á
netinu endurspeglar hver þú ert.
Foreldrafélag Grunnskólans á Blönduósi hvetur alla foreldra til að mæta
á þennan fyrirlestur. Gert er ráð fyrir að hann taki ekki meira en
klukkutíma.
|
 |
 |
22.
apríl 2009
Vettvangsheimsókn í Fjölbrautaskóla Norðurlands
Vestra
|
Í gær fór 10. bekkur í heimsókn í FNV til að kynna sér starfsemi skólans
ásamt 10. bekk á Skagaströnd.
Vel var tekið á móti hópnum og fengu krakkarnir að skoða skólastofur,
sjá kennslu, skoða aðstöðu nemendafélags og skoða heimavist ásamt því að
kynna sér baksturshæfileika mötuneytisstarfsfólks. Greinilegt er að
skólayfirvöld eru hreykin af verkmenntadeildunum sínum.
Málmiðnaðardeildin hefur nýlega fest kaup á tölvuvæddum tækjum eins og
best gerast á vinnumarkaði. Tréiðnaðardeildin vinnur að mjög
skemmtilegum verkefnum og þar er byggt eitt hús á hverri önn.
Í ferðinni hittum við marga fyrrverandi skólafélaga.
Góð ferð og takk fyrir okkur.
(texti AMV) |
 |
 |
 |
20.
apríl 2009
Sumarskemmtun
 |
Hin árlega sumarskemmtun Grunnskólans á Blönduósi verður
haldin sumardaginn fyrsta, 23. apríl.
Nemendur í 1.-7. bekk sjá um öll skemmtiatriði undir leiðsögn kennara.
Skemmtunin hefst kl. 14:00.
Aðgöngumiðinn kostar kr. 1000.
Ókeypis aðgangur er fyrir börn fædd 1996 (7. bekk) og yngri.
Með sumarkveðju,
starfsfólk Grunnskólans á Blönduósi.
Kökubasar Umf. Hvatar verður haldinn
að skemmtun lokinni!
|
 |
Skólamáltíðir
Pöntunarblað fyrir maí komið á netið.
17.
apríl 2009
Margrét Ásgerður sigraði
stærðfræðikeppnina
|
Í
dag 17. apríl er Stærðfræðidagur
FNV en þá er keppt til úrslita í
stærðafræðikeppni 9. bekkinga á Norðurlandi vestra. Að þessu sinni áttum
við tvo fulltrúa í keppninni þá Margréti Ásgerði og Sindra Rafn. Margrét
Ásgerður sigraði keppnina og óskum við henni innilega til hamingju með
þennan glæsilega árangur. |
 |
|
 |
|
Sindri Rafn, Margrét Ásgerður og Lilja
stærðfræðikennari |
Skólahópur leikskólans
|
Skólahópur leikskólans heimsótti skólann nú á dögunum. Nemendur 10.
bekkjar og nemendur 1. bekkja sáu um að sýna þeim húsakynni og kynna þau
fyrir starfsfólki skólans. Eftirvænting skein úr hverju andliti og
hlökkum við til að fá þessa skemmtilegu nemendur í skólann í haust.
Fleiri myndir |
 |
Íþróttadagur
|
Hin
árlegi íþróttadagur grunnskólanna í Húnavatnssýslum var haldin á
Húnavöllum fimmtudaginn 2. apríl.
Þar
mættu til leiks nemendur í 7.- 10. bekk og að þessu sinni var keppt í
fótbolta, körfubolta og borðtennis. Keppnin var mjög spennandi en um
svokallaða útsláttarkeppni var að ræða og ef leikir enduðu með jafntefli
var dregið, þannig að spennan var gríðarleg.
Úrslit urðu sem hér segir:
Húnavallaskóli 17,5
Grunnskóli Húnaþings vestra 16
Grunnskólinn á Blönduósi 15,5
Höfðaskóli 15
Íþróttadeginum lauk svo með danskennslu og diskóteki.
Fleiri myndir |
 |
27. mars
2009
Framsagnarkeppni grunnskólanna í Húnavatnsþingi
|
Nemendur Grunnskólans á Blönduósi gerðu góða ferð á Laugarbakka í gær
þegar þrír nemendur 7. bekkjar fóru þangað til að taka þátt í
Framsagnarkeppninni grunnskólanna í Húnavatnsþingi - vel studdir af
sínum bekkjarfélögum.
Keppendur skólans að þessu sinni voru þau Atli Einarsson, Dagbjört Henný
Ívarsdóttir og Hulda Sól Magneudóttir. Alls voru keppendurnir tólf frá
grunnskólunum fjórum hér á svæðinu; Grunnskóla Húnaþings vestra,
Húnavallaskóla og Höfðaskóla auk okkar.
Voru
allir keppendurnir mjög frambærilegir og stóðu sig með sóma, dómnefnd
keppninnar var því ekki öfundsverð af hlutskipti sínu en hana skipuðu
þau Þórður Helgason frá HÍ, systkinin Sigrún og Gísli Grímsbörn og
Júlíus Guðni Antonsson.
Það var
svo Ívan Árni Róbertsson, Höfðaskóla, sem bar sigur úr býtum. Rakel Ósk
Ólafsdóttir, Grunnskóla Húnaþings vestra, lenti í öðru sæti og Atli
Einarsson úr skólanum okkar í því þriðja. Kannski má segja að allir
skólarnir hafi átt sigurvegara í gær því Atli gekk áður í Húnavallaskóla
en hóf nám í Grunnskólanum á Blönduósi síðast liðið haust. |
 |
Páskaungar
|
Nú
nálgast páskafríið óðfluga og nemendur í 1. bekk bjuggu til ljómandi
fína páskaunga til að skreyta hjá sér. Þarna æfðu þau sig að klippa,
brjóta blöð og skreyta.
Afraksturinn má sjá á myndinni.
|
 |
24. mars
2009
Framsagnarkeppni grunnskólanna í Húnavatnsþingi
|
Á
fimmtudaginn 26. mars verður lokahátíð „Framsagnarkeppni grunnskólanna í
Húnavatnsþingi“ haldin í félagsheimilinu Ásbyrgi Laugarbakka.
Á
hátíðinni munu nemendur í 7. bekk, sem valdir hafa verið úr skólum
byggðarlagsins, lesa brot úr skáldverki og ljóð. Að lokum mun dómnefnd
velja þrjá bestu upplesarana og veita verðlaun.
Skáld
keppninnar að þessu sinni eru Brynhildur Þórarinsdóttir og Örn
Arnarson. Keppendur munu lesa úr verkum Þeirra, sem og ljóð að eigin
vali.
Tilgangur keppninnar er að glæða tilfinningu og metnað húnvetnskra
grunnskólanema fyrir íslensku máli og framsögn.
Forkeppni fór fram í hverjum skóla fyrir sig þar sem valdir voru þrír
keppendur sem fulltrúar hvers skóla.
Þeir
keppendur sem taka þátt í keppninni fyrir hönd Grunnskólans á Blönduósi
eru:
Atli
Einarsson, Dagbjört Henný Ívarsdóttir og Hulda Sól Magneudóttir
Dómarar voru þau Guðjón E. Ólafsson,
Kristín Guðjónsdóttir og Kolbrún Zophoníasdóttir.Texti
SBA |
 |
19. mars
2009
Skólamáltíðir
17. mars
2009
Fréttir frá þemaviku
|
6.
- 10. bekkur
Í þemavikunni í síðustu viku var krökkunum í 6. til 10. bekk blandað í
hópa sem hver um sig fékk ákveðna gönguleið til að ganga og vinna síðan
frekari upplýsingar um. Unnið var með upplýsingar um staðhætti,
náttúrufar, hús, fyrirtæki og stofnanir og margt fleira. Við þessa vinnu
lærðu krakkarnir margt nýtt og skemmtilegt um sitt nánast umhverfi. T.d.
var hópur af krökkum sem vissu ekki neitt um heita vatnið nema að það
kæmi úr krananum þegar skrúfað er frá. Í lok vikunnar gerðu sömu krakkar
grein fyrir virkjunarsvæði, aðveituæð, dreifikerfi og ýmsu öðru sem
tengist hitaveitunni. |
 |
|
Krakkarnir fóru í heimsóknir til einstaklinga og fyrirtækja og öfluðu
upplýsinga og fróðleiks sem reyndist ómetanlegur í þessu verkefni.
Kunnum við öllum hinar bestu þakkir fyrir hlýjar móttökur og aðstoð.
Við lok hvers dags brugðu nemar undir sig betri fætinum og iðkuðu
dansmennt undir styrkri stjórn Þórhöllu og Berglindar. Var ekki annað að
sjá en svokallaðir gömludansar féllu vel í kramið hjá unglingunum. Á
Árshátíðinni kom í ljós að danskennsla vikunnar hafði slegið í gegn og
dansaði hver sem betur gat og allir tóku þátt. |
 |
|
Mataræði og hollusta var í fyrirrúmi þessa daga og fræddust nemar um
innihald t.d. drykkja og morgunkorns og þótti sumum nóg um
sykurinnihaldið. Eftir að hafa fræðst um orkuþörf sína sáu margir að um
umframneyslu er oft að ræða og mætti skera niður og kannski helst breyta
til og borða ávexti, grænmeti, kjöt og fisk í staðinn fyrir pakkamat,
nammi og gos. |
 |
|
Á fimmtudaginn komu góðir gestir í heimsókn þau Vanda Sigurgeirsdóttir
og Jakob Frímann Þorsteinsson en auk þess að vera hjón starfa þau bæði
við menntavísindasvið Háskóla Íslands. Vanda spjallaði við krakkana um
mikilvægi hreyfingar og hve heilbrigðir lífshættir hafa mikil áhrif á
jákvæða félagslega stöðu og árangur í lífinu almennt.
Jakob fór í skemmtilega leiki úti á skólalóð sem allt í senn fela í sér
góða hreyfingu, skemmtun, fróðleik og blanda öllum saman án tillits til
aldurs og þroska. Krakkarnir tóku virkan þátt í leikjunum og skemmtu sér
hið besta. |
 |
|
Alla vikuna nutum við aðstoðar Páls Ingþórs Kristinssonar við að grúska
í myndum, sagnfræðilegum heimildum, kortum ofl. gögnum og kunnum við
honum bestu þakkir fyrir.
Anna Margret, Berglind,
Hörður og Lilja |
|
|
4.
og 5. bekkur -Heilbrigð sál í hraustum líkama -
Kveikjan að þemavikunni
voru tvö myndbönd, annað um hollt mataræði og hitt um tóbaksvarnir.
Fyrstu tvo tímana á
hverjum degi byrjuðum við á því að fara í íþróttahúsið og hver nemandi
hljóp í 5 mín. og annar taldi ferðirnar. Við ætlum svo að leggja
ferðirnar saman og athuga hvað við komumst langt á hringveginum. Það
var líka farið í ýmsa leiki og annað í íþróttahúsinu. t.d. lærðu
nemendur nokkur undirstöðuatriði í glímu og vakti það mikla lukku.
Sumir héldu áfram að glíma í frímínútum. Eftir nesti á hverjum degi var
unnið með þrjú mismunandi verkefni; mataræði, andlega heilsu og
líkamlega heilsu. Hóparnir voru þrír og fóru þeir allir í þessi verkefni
á hverjum degi.
Mataræði. Við
fórum yfir fæðuhringinn og bárum saman holla og óholla fæðu. Farið var í
Samkaup og hóparnir fengu það verkefni að “versla” í innkaupakörfu
hollan og óhollan mat með tilliti til verðs og innihalds. Hóparnir
fengu mismunandi verkefni að vinna með s.s. morgunmat, hádegismat og
síðdegiskaffi.
Andleg heilsa.
Þar var meðal annars farið í slökun, nemendur nudduðu hvorn annan og
máluðu listaverk með fingrunum sem átti að lýsa jákvæðum tilfinningum.
Líkamleg heilsa.
Þar var farið yfir hvaða íþróttir væri hægt að stunda á Blönduósi og
hvers vegna hreyfing væri góð fyrir líkama og sál.
Á föstudeginum kynntu
hóparnir verkefni sín sem þeir höfðu unnið að alla vikuna. Við enduðum
svo skemmtilega heilsuviku á sundlaugarpartýi. Nemendur héldu dagbók í
þemavikunni þar sem skrifað var hvað þeir borðuðu í morgunmat og nesti
og annað sem gert var í skólanum. Í lok hvers dags merktum við inn á
veggspjald hvernig hver nemandi kom í skólann, á bíl, gekk eða á hjóli.
Kveðja Erla, Óli,
Ragnheiður og allir krakkarnir í 4.-5. bekk. |
 |
 |
|
1.
- 3. bekkur
Í síðustu viku var mikið fjör í tengslum við heilsuvikuna. Vikan var
byggð þannig upp að deginum var skipt í þrjá hluta; hreyfingu, andlega
heilsu og bókleg verkefni. Nemendum var blandað saman í hópa og unnu
þeir saman alla vikuna. Margt var brallað. Farið var í göngutúra, jóga,
slökun, sund og íþróttasalurinn var notaður undir hina ýmsu leiki.
Föstudagurinn var mjög fjörugur, við byrjuðum daginn á að búa til skilti
með ýmsum heilsuslagorðum sem við notuðum þegar við fórum í
heilsuskrúðgöngu um bæinn. Við enduðum síðan vikuna á heilsupartýi í
íþróttasalnum þar sem við fengum hollan skyndibita, fórum í leiki og
kepptum í fílafótbolta. Allir voru sammála um að heilsuvikan hefði
heppnast mjög vel og allir skemmtu sér konunglega.
Anna Margret, Hrefna og Ingunn |
 |
|
Árshátíð
Þemavikunni lauk með árshátíð skólans sem var hin glæsilegasta. Voru
skólastýrurnar að rifna úr stolti yfir þessum frábæru nemendum sem eru
skólanum okkar alltaf til sóma. Sigurvegari “Blönduvision” í ár var
Guðbjörg Þorleifsdóttir 9. bekk.
Viljum við þakka öllum þeim sem komu á árshátíðina og vonum að þeir hafi
skemmt sér eins vel og við.
Kæru nemendur takk fyrir frábæra skemmtun, þið eruð æðisleg!
Myndir frá þemavikunni og árshátíðinni eru á
myndasíðu skólans. |
 |
13. mars
2009
Skólahreysti 3. sæti
|
Liðið okkar í
Skólahreysti náði glæsilegum árangri og hreppti 3. sætið í sínum
riðli með 40 stig. Við erum ákaflega stolt af liðinu okkar og má geta
þess að í þremur af fimm greinum vorum við í einhverju af fjórum efstu
sætunum. Elísa H. Hafsteinsdóttir var í 2. sæti í armbeygjum, Hilmar Þór
Kárason náði 3. sætinu í dýfum og Kristinn J. Snjólfsson og Margrét Á.
Þorsteinsdóttir náðu 4. sæti í hraðabrautinni. Við óskum þeim til
hamingju með frábæran árangur.
Þættir af mótunum eru sýndir á RÚV á laugardögum kl.18:00 og endursýndir
á sunnudögum og þriðjudögum.
|
 |
12. mars
2009
Árshátíð 2009
|
Hin
árlega árshátíð Grunnskólans á Blönduósi verður haldin
föstudaginn 13. mars í Félagsheimilinu á Blönduósi.
Húsið opnar kl. 19:00.
Árshátíðin hefst kl. 19:30 og lýkur kl. 01:00.
Dagskrá hefst með ávarpi formanns nemendaráðs Kristins Brynjars
Pálssonar,
næst verður sýndur söngleikurinn FAME í leikstjórn Jófríðar
Jónsdóttur.
Eftir leikritið verða glæsilegar kaffiveitingar og svo verður hin
árlega og frábæra
Blönduvision
sem allir bíða spenntir eftir,
hljómsveitin Polyester spilar undir.
Eins og venjulega verður happdrætti.
Að
lokinni skemmtidagskrá fer fram dansleikur þar sem hinn frábæri
plötusnúður DJ Magnificent spilar fyrir dansi.
Miðaverð
6.
bekkur og eldri kr. 1500.-
1.
– 5. bekkur kr. 800.-
6
ára og yngri fá frítt.
Vonandi sjá sem flestir sér fært að mæta.
Nemendur 8., 9. og 10. bekkjar
|
 |
6. mars
2009
Þemavika
|
Dagana 9. – 13. mars verður haldin þemavika í skólanum. Yfirskrift
vikunnar er heilsuvika, heilbrigð sál í hraustum líkama.
Viðfangsefni verða fjölbreytt og mismunandi áherslur eftir aldursstigum.
Dagskrá hjá öllum verður frá 8:00 – 12:30 alla daga vikunnar en frí
eftir hádegi.
Fimmtudaginn 12. mars nk. keppa þau Elísa H. Hafþórsdóttir, Kristinn
J. Snjólfsson, Hilmar Þór Kárason og Margrét Á. Þorsteinsdóttir fyrir
hönd skólans í
Skólahreysti. Keppnin verður haldin í Íþróttahöllinni á Akureyri
og hefst hún kl 15:00. Lagt verður af stað 11:30.
Öllum nemendum í 8. – 10. bekk er boðið að fara með til að hvetja okkar
þátttakendur.
Brottför
er frá Akureyri er 18:30.
Þættir af mótunum eru sýndir á RÚV á laugardögum kl.18:00 og endursýndir
á sunnudögum og þriðjudögum.
Vikan endar á árshátíð skólans föstudagskvöldið 13. mars.
Það eru nemendur í 8. - 10. bekk sem sjá um að skemmta okkur hinum og
verður dagskráin m.a. auglýst í skólablaðinu Vit sem borið verður
í hús í heilsuvikunni. |
 |
 |
4. mars
2009
Bingó
|
Á morgun fimmtudag verður Bingó í Félagsheimilinu á Blönduósi, hefst það
klukkan 19:30.
Spjaldið kostar 500 krónur og eru margir frábærir vinningar í boði. 10.
bekkur í Grunnskólanum á Blönduósi stendur fyrir bingóinu og er það
hluti af fjáröflun þeirra fyrir vorferð í skólalok.
Er ekki um að gera að drífa sig út og freista gæfunnar. |
24.febrúar
2009
Grímuball
|
Miðvikudaginn 25.
febrúar 2009 verður hið árlega grímuball haldið í Félagsheimilinu.
Dagskrá:
19:00 Húsið opnar.
19:30 Marsering.
Verðlaunaafhending.
Kötturinn sleginn úr
tunnunni.
21:30 Dansi lýkur.
Aðgangseyrir kr. 300
fyrir grímuklædda.
kr. 700 fyrir aðra.
Frítt fyrir yngri en 6 ára.
Nemendur, foreldrar
og aðrir bæjarbúar eru hvattir til að koma grímuklæddir. Veitt verða
verðlaun fyrir frumlega og fallega búninga og góðan leik.
Skólastjóri.
Myndir
frá Öskudeginum eru komnar á myndavefinn. |
 |
6.febrúar
2009
Grís í heimsókn
|
Það er óhætt að segja
að það eru engir tveir skóladagar eins. Þetta á í það minnsta við um
óvænta uppákomu sem varð rétt fyrir hádegi í dag – en þá kom lítil gylta
í heimsókn í íþróttahúsið.
Ekki er laust við að
hún hafi vakið athygli og voru ófáir nemendur sem fengu aðeins að
strjúka henni eða halda á. Sumum nægði hins vegar að horfa bara á
gripinn.
Gylta þessi, sem í
raun er bara lítill grís enn, er afmælisgjöf til ágætrar bóndakonu hér í
sveit. Tvennt var á óskalista afmælisbarnsins og var grís annað þess sem
óskað var. Það er ekki leiðinlegt að láta óskir rætast á þessum síðustu
og verstu tímum...
|
 |
28.janúar
2009
Upplestur hjá 7. bekk
|
Nemendur í 7. bekk
hafa nú hafið æfingar fyrir Stóru upplestrarkeppnina sem fer fram þann
26. mars næst komandi. Af því tilefni buðu nemendur bekkjarins foreldrum
sínum eina kvöldstund í skólann til að hlusta á þá lesa upp úr nýjum
bókum frá Forlaginu og Skjaldborg. Varð úr hin notalegasta stund sem
allir höfðu gott og gaman af. Næst á að æfa sig að flytja ljóð og er
aldrei að vita hverju bekkurinn tekur uppá við þær æfingar.
|
 |
23.janúar
2009
Smiðjur
|
Við gerðum verkefni í
textílmennt. Við teiknuðum myndir sem við eigum að vefa. Svo gerðum við
5 hæða snjókarl. Hann var stærri en Anna Margret og hún var í vandræðum
með að koma hausnum á. Síðan gerðum við barn fyrir hann svo hann yrði
ekki einmanna. Vonandi mun enginn eyðileggja hann svo fólk sem fer í
kvöldgöngu sjái hann. Nema hann bráðni eins og Snæfinnur. Snjókarlinn
okkar heitir Snæfinnur Fimmfaldi og barnið Gosi enda er hann með langt
trénef.
Kveðja Fílar og Anna Margret |
 |
19.janúar
2009
Skólamáltíðir
|
Pöntunarblað fyrir febrúar er hægt að
nálgast hér á síðunni undir skólamáltíðir hér vinstra megin. |
12.janúar
2009
Skáld í skólum
|
Í dag fengum við góða
heimsókn á vegum bókmenntaverkefnisins „Skáld í skólum", en til okkar
komu Iðunn Steinsdóttir, rithöfundur, og Hjörleifur Hjartarson,
rithöfundur og þýðandi. Hver trúir því að froskur geti breytt sér í
snigil eða fugl? Eða dreki spilað fótbolta?Höfundarnir ferðuðust með
nemendum um ævintýraheima þar sem ólíklegustu skepnur vildu endilega
kynnast börnum, sem hefði verið besta mál ef þær væru ekki
stórhættulegar á köflum. En allir komust heilir frá þessari skemmtilegu
og fróðlegu heimsókn og þökkum við þeim Iðunni og Hjörleifi kærlega
fyrir komuna.
|
  |
31.desember
2008
Skólastarf
 |
Gleðilegt ár
og
takk fyrir það liðna.
Kennsla hefst
þriðjudaginn 6. janúar
samkvæmt stundaskrá.
|
 |
|
29.desember
2008
Skólamáltíðir
|
Kæru
foreldrar/forráðamenn
Á fundi bæjarráðs
Blönduóssbæjar þann 18. des. var bæjarstjóra falið að ganga til samninga
við Blöndubyggð ehf. um skólamáltíðir og um leigu á húsnæði. Samningar
hafa náðst og mun fyrirkomulag skólamáltíða vera með sama snið og á sama
stað og verið hefur.
Þar sem samningur lá ekki fyrir reyndist
ekki unnt að senda út pöntunarseðla fyrir jól. Viljum við því biðja
ykkur um að bregðast skjótt við og senda okkur pöntun eins fljótt og
hægt er í tölvupósti, löturpósti eða bara koma við hjá okkur. Vinsamlega
hakið við ef óskað er eftir að sama skráning gildi fyrir alla vorönnina
(það er mikið hagræði fyrir okkur).
Pöntunarblað er hægt að nálgast
hér
|
 |
22.desember
2008
 |
Starfsfólk
Grunnskólans á Blönduósi óskar nemendum og fjölskyldum þeirra
gleðilegra
jóla og farsældar á nýju ári.
|
 |
Til umhugsunar
|
Því miður verða slys á börnum í tengslum
við flugelda um hver einustu áramót. Flest þessara slysa verða hjá
strákum og alvarlegustu slysin verða þegar meðhöndla flugeldavörurnar á
annan hátt en ætlast er til.
Slysavarnafélagið
Landsbjörg hefur undanfarin ár reynt að sporna við þessum slysum með
ýmsum hætti, svo sem flugeldagleraugum og almennri fræðslu.
Miklu máli skiptir að gera börnum grein
fyrir þeim hættum sem fylgja því að að búa til sínar eigin sprengjur,
taka flugelda í sundur eða skjóta upp flugeldum sem þau hafa ekki aldur
til að gera. Slysavarnafélagið Landsbjörg útbjó myndbandið Ekkert
fikt fyrir þremur árum. Markmiðið með myndbandinu er að gera börnum
grein fyrir alvarleika þessa fikts.
Hægt er að horfa á þetta
myndband með því að smella á myndina.

|
17.desember
2008
Blöndungur
|
Hér er hægt að skoða Blöndung sem að þessu sinni er unninn af
nemendum í Fjölmiðlavali. |
15.desember
2008
Litlu jólin
föstudaginn 19. desember 2008
|
Dagskrá
14:00
Mæting í skólann
14:10 Gengið til kirkju
1. Hugvekja
2. Kór,
4.—6. bekkur
3. Helgileikur
- nemendur í 6. bekk
4. Kór,
1.—6. bekkur
14:40
Jóladansleikur í íþróttasal
15:30
Litlu jól í stofum
16:30
Dagskrárlok
Nemendur eiga að hafa með sér smákökur og/eða kex og drykk. Gosdrykkir
eru leyfðir en ekki sælgæti. Nemendur þurfa einnig að koma með
sprittkerti og ílát undir það og litla jólagjöf. Miðað er við að gjöfin
kosti u.þ.b. 300 kr.
Foreldrar er hvattir til þess að taka þátt í þeirri dagskrá sem fram fer
í kirkjunni og íþróttasalnum.
Athygli
er vakin á því að skóladagheimilið er opið fyrir hádegi. Foreldrar eru
vinsamlega beðnir um að láta vita ef þeir hafa áhuga á að nýta sér það.
Gleðileg jól!
Starfsfólk Grunnskólans á Blönduósi |
 |
12.
desember 2008
Próftafla fyrir 8. - 10. bekk
|
Tilkynning með
prófdögum í 8. - 10. bekk fór inn á Mentor 8. desember.
Vinsamlegast fylgist vel með upplýsingum inn á Mentor, en hafið
samband við umsjónarkennara eða fagkennara ef eitthvað er
óljóst. |
|
Dagur: |
10. bekkur |
9. bekkur |
8. bekkur |
|
16. desember
þriðjudagur |
kl. 8
stærðfræði
Lilja
kl. 10
Samfélagsfræði
Hörður |
kl. 8
samfélagsfræði
Hörður
kl. 10
danska
Ragnheiður |
kl. 8
danska
Ragnheiður
kl. 10
stærðfræði
Lilja
|
|
17. desember
miðvikudagur |
kl. 8
enska
Anna
kl. 10
danska
Ragnheiður |
kl. 8
enska
Anna
kl. 10
stærðfræði
Lilja |
kl. 8
enska
Anna
kl. 10
samfélagsfræði
Hörður
|
|
18. desember
fimmtudagur |
kl. 8
íslenska
Berglind
|
kl. 8
íslenska
Berglind
|
kl. 8
íslenska
Berglind
|
|
4. desember 2008
Skreytingardagur
|
Myndir frá
skreytingadeginum eru komnar á netið. Dagurinn var mjög skemmtilegur
enda ekki við öðru að búast þar sem nemendur okkar eru frábærir og kunna
að njóta svona daga. Hér var bakað, föndrað, spilað og skreytt og gátu
allir fundið eitthvað við sitt hæfi. |
 |
Ferðasýning
|
Börnin í 7. og 8.bekk unnu síðastliðnar
tvær viku að uppsetningu ferðasýningar í smiðjutímunum (upplýsingatækni,
myndmennt, heimilisfræði og textílmennt). Verkefnið er unnið samhliða
kennslu í samfélagsfræði 7. bekkjar þar sem bókin „Evrópa-álfan okkar“
er kennd. Við kennslu var einnig
heimasíðan notuð sem ég setti upp fyrir þau.
Kynning verkefnisins var 27.nóvember kl.
19:15 í bekkjarstofunum og var fjölskyldum barnanna boðið á sýninguna.
Börnin buðu upp á kaffi, kökur og annað gotterí sem þau bjuggu til í
heimilisfræði.
Ég óska nemendum innilega til hamingju
með frábæra sýningu og þakka þeim fyrir að þau gerðu æfingakennsluna svo
skemmtilega fyrir mig!
Kveðja Sonja |
 |
Myndir
|
Myndir frá
aðventudeginum eru komnar inn á myndasíðuna okkar. Við reynum að
bæta sem oftast nýjum myndum á vefinn og vonum að þið séuð dugleg að
fylgjast með. Smellið á Myndir hér til vinstri og þá getið þið skoðað
myndasíðurnar. |
Hvar er Stekkjarstaur?
|
Í gær mánudag var nemendum 1. - 3. bekkjar
og nemendum leikskólans boðið á leiksýninguna "Hvar er Stekkjarstaur?".
Grunn- og leikskólinn buðu til sýningarinnar sem var hin skemmtilegasta.
Leikritið "Hvar er Stekkjarstaur?" er
eftir Pétur Eggerz og er sýningin sett upp af
Möguleikhúsinu. |
 |
 |
21. nóvember 2008
Aðventudagur í Grunnskólanum á Blönduósi
n.k. sunnudag
|
Aðventudagur foreldrafélags Grunnskólans á
Blönduósi verður sunnudaginn 23. nóvember frá kl. 13:00 – 16:00.
Dagskráin er nokkuð hefðbundin en á staðnum verður hægt að kaupa
ýmislegt föndur, jólaskraut og piparkökur sem hægt er að skreyta á
staðnum en einnig verður boðið upp á tónlistaratriði í boði
Tónlistarskóla A-Hún.
Aðventudagurinn er dagur fyrir alla
fjölskylduna, líka afa, ömmu og önnur viðhengi. Nemendur 10. bekkjar sjá
um kaffisölu til fjáröflunar fyrir bekkinn og spil verða í boði fyrir þá
sem ekki eru í föndurstuði
|
 |
13. nóvember 2008
Skólabúðirnar í Reykjaskóla
|
Í síðustu viku október fóru memendur 7.
bekkjar í skólabúðir í Reykjaskóla í Hrútafirði. Skemmtu allir sér
konunglega eins og sést á myndunum sem teknar voru. Smellið á myndina
hér til hægri til að sjá fleiri myndir.
Skólabúðirnar í Reykjaskóla tóku til
starfa haustið 1988 og hafa starfað óslitið síðan. Nemendum grunnskóla
víðsvegar að af landinu gefst kostur á að dvelja í skólabúðunum,
vikutíma í senn við nám, leik og störf. Árlega koma á bilinu 2800-3000
börn í skólabúðirnar og miðast starfstíminn að mestu við skólaár
grunnskóla landsins(heimild:http://www.skolabudir.is/).
|
 |
5. nóvember 2008
BINGO
|
Minnum á hið árlega bingó sem haldið er af
nemendum 10. bekkjar í Félagsheimilinu í kvöld kl. 20:00
Glæsilegir vinningar!
|
3. nóvember 2008
KYNNINGARFUNDIR Á NORÐURLANDI VEGNA NÝRRA
SKÓLALAGA
|
Sameiginlegir fundir menntamálaráðuneytis
og Sambands íslenskra sveitarfélaga um landið til kynningar og umræðna
um ný lög um skóla og menntun verða haldnir fyrir Norðurland í þessari
viku: á Blönduósi, nk. þriðjudag 4. nóvember og á Akureyri daginn eftir,
5. nóvember. Um er að ræða fundi fyrir stjórnsýsluna;
sveitarstjórnarmenn, starfsmenn skóla- og fræðsluskrifstofa,
skólanefndir og skólastjórnendur sem hefjast kl. 16:00 og opinn
borgarafund að kvöldi með menntamálaráðherra og starfsfólki
menntamálaráðuneytis.
Blönduós: 4. nóvember kl. 16:00-18:00 í Félagsheimilinu á Blönduósi
Fundarstjóri verður Gunnar Bragi Sveinsson, formaður SSNV
Menntamálaráðuneytið hefur tilkynnt um að fresta þurfi borgarafundi með
ráðherra á Blönduósi sem vera átti að kvöldi 4. nóvember.
|
30.október 2008
|
Minnum á vetrarfríið
föstudaginn 7. nóvember og mánudaginn 10. nóvember! |
10. bekkur heimsækir VMA og MA
|
Nemendur 10. bekkjar heimsóttu í gær
Menntaskólann á Akureyri og Verkmenntaskólann á Akureyri.
Fjölbrautaskólinn á Sauðárkróki verður svo sóttur heim í byrjun mars. Þá
ættu nemendur að vera búnir að fá góða kynningu á þeim skólum sem eru
okkur næstir hér á Norðurlandi.
Smellið á nöfn skólanna til að sjá heimasíður
þeirra.
|
 |
Lögreglan í heimsókn
|
Í síðustu viku
heimsótti Róbert Freyr Gunnarsson lögreglumaður nemendur í 1. - 6. bekk.
Hann fór yfir ýmsar reglur sem mikilvægt er að virða og fara eftir t.d.
umferðarreglur, reglur um; útivist, hjálma, bílbelti og fleira. Róbert
Freyr er forvarnafulltrúi lögreglunnar hér í umdæminu. Hægt er að lesa
um forvarnarverkefni lögreglunar á
lögregluvefnum.
|
 |
Kennaranemar
|
Undanfarnar vikur höfum við haft þrjá kennaranema hér í skólanum.
Hægt er að lesa meira um nemana og viðfangsefni þeirra á
Óvitanum (glæsilegur fréttavefur sem fjölmiðlaval heldur úti) og
einnig eru myndir á
myndasíðunni. |
   |
20.október 2008
Skólamáltíðir
|
Pöntunarseðill fyrir nóvember er kominn á vefinn, smellið á
skólamáltíðir hér til vinstri.
Vinsamlega skilið pöntunarmiðanum í síðasta lagi fyrir hádegi
miðvikudaginn 22. okt. 2008! |
14.október 2008
Til foreldra frá Heimili og skóla
|
Foreldrar eiga það sameiginlegt að vilja
að börnum þeirra líði vel. Mikilvægt er fyrir okkur öll að staldra við
og huga að því sem eykur vellíðan barna.
Menntamálaráðuneytið hefur beitt sér fyrir
samráði allra aðila sem vinna að velferð barna og unglinga með það að
markmiði að veita þeim viðeigandi stuðning.
Verum óhrædd við að leita ráða í þeim
erfiðleikum sem við okkur blasa. Leitum til okkar nánustu og kynnum
okkur þær leiðir aðrar sem samfélagið býður upp á til stuðnings við
fjölskyldur.
Meira
|
 |
8.október 2008
Tónleikar
|
Tríóið Guitar
Islancio héldu tónleika fyrir nemendur grunnskólans í morgun.
Fjölmiðlaval skrifar meira um tónleikana á
Óvitanum.
|
 |
1.október 2008
Ný myndasíða
Nýjar myndir eru komnar inn á
heimasíðuna. Hægt er að skoða þær með því að smella á „Myndir" hér til hliðar.
Starfsdagur og foreldraviðtöl
|
Mánudaginn 6. október
er starfsdagur í skólanum og því engin kennsla þann dag. Þriðjudaginn 7.
október er foreldraviðtalsdagur, nemendur fara heim með fundarboð fyrir
helgi. Skóladagheimilið er opið þessa daga (sjá heimsenda miða) og verða
foreldrar að hafa samband við Höllu ef þeir ætla að nýta sér þjónustuna.
|
|
25.september 2008
Bekkjarfulltrúar
Stjórn foreldrafélagsins
boðar fund með bekkjarfulltrúum mánudaginn 29. september kl. 20:00 í Nýja
skólanum.
Mjög mikilvægt er að allir
bekkjarfulltrúar mæti.
24.september 2008
Gísli Súrsson
|
Nemendum í 6. - 10.
bekk var boðið á leiksýningu í gær. Um var að ræða einleik Elfars Loga
Hannessonar á Gísla sögu Súrssonar.
Gísli Súrsson byggir á einni af
þekktustu Íslendingasögunum. Leikurinn segir af örlögum Gísla Súrssonar
og fjölskyldu hans sem taka land í Haukadal í Dýrafirði. Gengur þeim
allt í haginn í fyrstu og verða brátt hinir mestu höfðingjar. En skjótt
skipast veður í lofti og brátt er farið að fella mann og annan. Þetta
endar loks með því að Gísli er útlægur ger.
Sýningin var mjög skemmtileg og ekki annað að sjá en að nemendur hefðu
gaman af. |
 |
Íþróttamiðstöðin opnar upplýsingarvef
|
Íþróttamiðstöðin á
Blönduósi hefur opnað upplýsingarvef.
Vefurinn er fyrst og fremst hugsaður sem upplýsingarvefur og er
meiningin að vera með fréttir varðandi það sem er í boði í
Íþróttamiðstöðinni. Hægt verður að sjá stundatöflu, verðskrár,
opnunartíma, reglur, ofl. á vefnum.
Einnig er hægt að nálgast teikningar af nýju sundlauginni.
Vefurinn er í þróun hjá okkur þannig að verið ófeimin að koma með
ábendingar um það sem betur mætti fara og senda þær á vefstjóra til
skoðunar.
Róbert Daníel Jónsson, starfsmaður íþróttamiðstöðvar, er umsjónarmaður
vefsins og sá hann jafnframt um uppsetningu.
Tengill á síðuna er í efnisyfirlitinu hér
til vinstri |
 |
15.september 2008
Óvitinn
|
Nemendur í fjölmiðlavali hafa stofnað
bloggsíðu þar sem þeir munu skrifa inn fréttir, greinar og
fróðleik. Bloggsíðan heitir Óvitinn og hægt er að opna hana með því að
smella á hnappinn Óvitinn hér vinstra megin. |

|
4.ágúst 2008
Kynningarkvöld
|
Hinir árlegu kynningarfundir verða haldnir dagana 9. og 10. sept. nk.
Þriðjudagur, 9. september:
·
Olweusarfundur fyrir alla foreldra grunnskólans verður kl. 19:30
í Félagsheimilinu á Blönduósi.
Á fundinum verða kynntar niðurstöður úr eineltiskönnun sem lögð var
fyrir nemendur í skólanum s.l. vetur. Guðbjörg Inga Guðmundsdóttir
sérkennari í Grunnskóla Húnaþings vestra og umsjónarmaður
Olweusarverkefnisins hér á þessu svæði mun kynna niðurstöðurnar.
·
Kynningarkvöld fyrir foreldra 1. – 5. bekkjar.
Fundir hefjast kl. 20:30 og gert er ráð fyrir að þeim ljúki kl. 21:30.
Dagskráin fer fram í heimastofum viðkomandi bekkja þar sem foreldrar
hitta umsjónarkennara barna sinna og farið verður yfir skólastarf
vetrarins.
Miðvikudagur, 10. september:
Kynningarkvöld fyrir foreldra 6. – 9. bekkjar.
Fundir hefjast kl. 19:30 og gert er ráð fyrir að þeim ljúki kl. 20:30.
Dagskráin fer fram í heimastofum viðkomandi bekkja þar sem foreldrar
hitta umsjónarkennara barna sinna og farið verður yfir skólastarf
vetrarins.
Mikilvægt er að allir nemendur eigi a.m.k. einn fulltrúa á þessum
fundum.
Skólastjóri
|
 |
21.ágúst 2008
Skólamáltíðir
|
Skólamáltíðir hefjast 1. september.
Nemendur fá pöntunarblað með sér heim í dag nema 1. bekkur þeir nemendur
koma heim með pöntunarblað á morgun (föstudag). Nemendur skulu skila
blaðinu eigi síðar en fyrir hádegi þriðjudaginn 26. ágúst. Nú er hægt að
vista pöntunarseðilinn af heimasíðunni, skrá í viðeigandi reiti og senda
á netfangið sigridurb hjá blonduskoli.is Einnig vil ég minna á að hægt
er að panta fyrir alla önnina eins og á síðasta skólaári og þarf þá að
haka í viðeigandi reit og hvetjum við foreldra til að nýta sér það. Ef
einhverjar óvæntar breytingar verða þarf að tilkynna þær fimm virkum
dögum fyrir mánaðamót.
Pöntunarseðilinn er hægt að finna með því að smella á skólamáltíðir hér
til vinstri og svo á viðeigandi mánuð.
Með von um skjót viðbrögð
Sigríður B. Aadnegard
aðstoðarskólastjóri |
|
11.ágúst 2008
Skólasetning
|
Grunnskólinn á Blönduósi verður settur
miðvikudaginn 20. ágúst næstkomandi kl. 11:00 í Blönduóskirkju.
Foreldrar eru hvattir til þess að koma með börnum sínum. Að lokinni
skólasetningarathöfn munu nemendur hitta umsjónarkennara sína og fá
afhentar stundatöflur. Kennsla í 2.-10. bekk hefst samkvæmt stundaskrá
fimmtudaginn 21. ágúst. Nemendur í 1. bekk verða boðaðir til viðtals með
forráðamönnum fimmtudaginn 21. ágúst og hefja nám samkvæmt stundaskrá
föstudaginn 22. ágúst.
Þeir foreldrar sem eiga eftir að skrá börn
sín í skólann eru beðnir um að gera það sem fyrst.
Halla Bernódusdóttir verður á
skóladagheimilinu 20. ágúst strax að lokinni skólasetningu og til kl.
13:00 og veitir upplýsingar og tekur niður pantanir vegna lengdrar
viðveru, sem boðið er upp á fyrir nemendur í 1.-4. bekk. Nauðsynlegt er
að þeir foreldrar sem hyggjast nýta sér þessa þjónustu skrái börn sín
þennan dag. Hægt er að nálgast upplýsingar um skóladagheimilið á
heimasíðu skólans.
Þórhalla Guðbjartsdóttir
skólastjóri |
 |
|