Sundlaugin

Ný útisundlaug opnar miðvikudaginn 16. júní. Sundlaugin er 25 x 8,5 metrar að stærð, tveir heitir pottar annar með nuddi, gufa, vaðlaug og tvær stórar rennibrautir, önnur er bein braut með um 30% halla en hin er með um 11,5% halla og er mun lengri. Að auki er ein fílarennibraut fyrir minnstu börnin úti vaðlaugina.

Umhverfisvænar lausnir notaðar í nýrri sundlaug Blönduósbæjar

Blönduósbær festi kaup á búnaði til framleiðslu á klór í tengslum við byggingu sundlaugar á Blönduósi. Jafnframt fellur til sódi við framleiðsluna sem notaður er til að stýra sýrustiginu (ph-gildi) og þarf því ekki að vera með kolsýru sem annars er notuð í þeim tilgangi. Klór er notaður til sótthreinsunar á sundlaugarvatni og er yfirleitt keypur tilbúinn og er blandað í vatnið eftir því magni sem þarf til sótthreinsunar. Samkvæmt reglugerð á sundlaugarvatn að hafa sýrustigið á milli 7,2-7,8. Kolsýra er notuð til að lækka sýrustigið þar sem tilbúinn klór hefur hátt sýrustig.

Tækið er það fyrsta sinnar tegundar hér á landi og er framleitt af Van den Heuvel í Hollandi. Framleiðslan á sér stað með rafgreiningu og er salt eina afurðin sem þarf í framleiðsluna ásamt rafmagni og vatni. Framleitt er klórgas og það sett beint inn í sótthreinsun auk þess sem kerfið framleiðir klórvatn sem notað er til að mæta dagssveiflum í notkun. Helstu kostir nýja kerfisins eru:

•          Lítill framleiðslukostnaður

•          Enginn flutningur á milli staða á hættulegum efnum

•          Klórlykt minnkar

•          Sviði í augum minnkar verulega

•          Húðerting minnkar

•          Vistvænt fyrir starfsfólk

•          Skemmir ekki fatnað við flutning á klór

•          Stuðlar að umhverfisvænu umhverfi

•          Sundlaugargestum fjölgar þar sem ekki er lengur um óþægindi af klór að ræða

Ókosturinn er að stofnkostnaður við kerfið er mikill en á móti kemur að rekstrarkostnaður er mjög lágur.

Kaupin á tækinu samræmast vel umhverfisstefnu Blönduósbæjar þar sem lögð er áhersla á að minnka notkun hættulegra efna sem skaðað geta lífríkið á svæðinu en klór getur verið afar hættulegur lífríkinu ef hann kemst í nægum styrkleika í umhverfið.


Hvöt - Sundæfingar

 

Sundæfingar á vegum Sunddeildar Hvatar hófust að nýju miðvikudaginn 24. ágúst 2010 í sundlauginni á Blönduósi.

Æfingar verða sem hér segir:

Mánudagar

Fimmtudagar

1. - 2. bekkur

16:15 – 17:15

3. – 5. bekkur

17:15 – 18:15

17:15 – 18:15

6. – 10. bekkur

18:15 – 19:30

18:15 – 19:30

Iðkendur þurfa að vera mættir u.þ.b. 10 mínútum fyrir æfingu til að vera tilbúnir þegar æfing byrjar. Iðkendur mega ekki fara ofan í laugina fyrr en á þá er kallað.

Frekari upplýsingar veitir Berglind Björnsdóttir í síma 863-6037.






Opnunartímar


Vetraropnun

Sundlaug:

Þriðjudaga og fimmtudaga
er opið frá kl.13:00 til 21:00

Mánudaga og miðvikudaga
er opið frá kl. 06:30 til 9:00
og 15:00 til 21:00

Föstudaga er opið frá
kl. 06:30 til 9:00
og 13:00 til 17:00

Laugardaga er opið frá
kl. 10:00 til 16:00

Sunnudaga er lokað

Athugið:

- Hætt er að hleypa ofan í sundlaugina 30 mín. fyrir lokun.

- Gestir Íþróttamiðstöðvarinnar skulu yfirgefa húsið eigi síðar en 15 mín. eftir lokun.


 

-----------------------------------------------