Ketilbjöllunámskeið á Blönduósi – fyrir alla!

10.01.2012
Kettlebells Iceland, sem hefur verið með reglulega ketilbjölluþjálfun á Íslandi síðan 2006, verður með stutt og hnitmiðað grunnnámskeið í ketilbjölluæfingum í íþróttahúsinu á Blönduósi þriðjudaginn 17. Janúar kl.17-18:30.

Í tímanum verður farið yfir helstu grunnæfingarnar og hvernig æfingar auka styrk, úthald og snerpu hjá ungum sem öldnum. Námskeiðið hentar sérstaklega þeim sem æfa sjálfir og vilja ná meiri árangri.

Þátttökugjaldið er 1.500 kr.

Ketilbjöllur verða til sölu á staðnum á 25% afslætti, best er að panta þær fyrirfram. Skráning og nánari upplýsingar, Egill Steingrímsson, 858 0850 og Guðjón Svansson, gudjon@kettlebells.is / 857 1169 / www.kettlebells.is


Lengri kvöldopnun í sundlaug frá og með 9. janúar n.k.

04.01.2012
Frá og með 9.janúar nk. lengist opnunartími sundlaugarinnar. Sú breyting verður á að opið verður til klukkan 21:00 í stað til klukkan 20:00 mánudaga - fimmtudaga. Hætt er að hleypa ofan í sundlaugina 30 mín. fyrir lokun.

Vegna þessa breytinga viljum við vekja athygli foreldra á útivistartíma barna en þar kemur fram að börn 12 ára og yngri mega ekki vera á almannafæri eftir kl 20.00 nema í fylgd með fullorðnum. Aldursmörk þessa ákvæðis miðast við fæðingarár en ekki fæðingardag. 1. maí til 1. september lengist útivistartími barna um tvær klukkustundir.




Nýtt námskeið hjá Erlu Jakobs hefst mánudaginn 9. janúar

03.01.2012
Nýtt námskeið hjá Erlu Jakobs hefst
mánudaginn 9. janúar.


Endilega skoðið auglýsinguna og skráið ykkur á telma@fitubrennsla.is













Frjálsíþróttaæfingar USAH

25.12.2011
Frjálsíþróttaæfingar USAH hefjast miðvikudaginn 4. janúar n.k.

Þjálfari verður Bjarni Salberg Pétursson og eru æfingatímarnir eftirfarandi:

Frá kl. 15:15 til 16:30 (4. til 6. bekkur)

Frá kl. 16:30 til 18:00 (7. til 10. bekkur)

Hvetjum alla til að mæta, kostar ekkert að prófa.

Stjórn USAH



Sundæfingar hefjast aftur mánudaginn 9. janúar

25.12.2011
Sundæfingar hefjast aftur eftir jólafrí mánudaginn 9. janúar.



Ný gjaldskrá tekur gildi 1. janúar 2012

23.12.2011
Ný gjaldskrá Íþróttamiðstöðvarinnar tekur gildi 1. janúar 2012, hægt er að skoða hana á vefnum með því að smella hér >>



Alvöru Old boys æfingar hefjast á nýju ári!

12.12.2011
Alvöru Old boys fótboltaæfingar hefjast í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi á nýju ári. Æfingarnar verða á laugardögum frá klukkan 10:30 til 12:00 og verður fyrsta æfingin 7. janúar 2012. Skilyrðin sem hver Old boys leikmaður þarf að uppfylla er að vera orðinn 35 ára en þeir sem eru örlítið yngri eru að sjálfsögu velkomnir til reynslu.

Undanfarin ár hafa yngri menn verið að mæta á svokallaðar Old boys æfingar sem voru tvisvar í viku á virkum dögum. Þetta hefur orðið til þess að smá saman hafa þeir eldri hætt að mæta. Núna stendur þetta til bóta, eins og áður verða sér æfingar á miðvikudögum fyrir yngri aldurshópinn eða frá klukkan 20:00 – 21:30. Þannig að það ætti að vera vettvangur fyrir alla til að láta ljós sitt skína.

Verum duglegir á nýju ári og mætum í bolta.



Opnunartími yfir jólin

25.11.2011

Föstudaginn 23.  (Þorláksmessu) og 30. desember er opið frá 12:00 til kl. 16:00.

Lokað 24., 25., 26. og 31. desember.  
Einnig er lokað 1. janúar 2012.

27., 28., og 29. desember er opið
-  frá kl. 13:00  til 20:00 í sundlauginni
-  frá kl. 13:00 til 21:00 í þreksalnum
Ath: Kvöldtímar í íþróttasal verða óbreyttir þessa daga.

Pantið tímanlega ef þið viljið fá tíma í íþróttasalnum á þessum dögum.


Athugið eftirfarandi breytingar á stundatöflu Íþróttamiðstöðvarinnar

21.11.2011

Kvenna Blak er á þriðjudögum frá kl. 19:00 til 20:30.

Körfubolti karla er á þriðjudögum frá kl. 20:30 til 21:30 og fimmtudögum frá kl. 20:00 til 21:00.

Old boys fótbolti er miðvikudögum frá klukkan 20:00 til 21:30.

Annað er óbreytt.


Athugið breytta Vetraropnun

21.11.2011

Vetraropnun

Sundlaug:

Þriðjudaga og fimmtudaga er opið frá kl.13:00 til 20:00

Mánudaga og miðvikudaga er opið frá kl. 06:30 til 9:00 og 15:00 til 20:00

Föstudaga er opið frá kl. 06:30 til 9:00 og 13:00 til 17:00

Laugardaga er opið frá kl. 10:00 til 16:00

Sunnudaga er lokað.

Þreksalur:

Þriðjudaga og fimmtudaga er opið frá kl.07:45 til 21:00

Mánudaga og miðvikudaga er opið frá kl. 06:30 til 21:00

Föstudaga er opið frá kl. 06:30 til 17:00

Laugardaga er opið frá kl. 10:00 til 16:00

Sunnudaga er lokað.

Athugið:

- Hætt er að hleypa ofan í sundlaugina 30 mín. fyrir lokun.

- Gestir Íþróttamiðstöðvarinnar skulu yfirgefa húsið eigi síðar en 15 mín. eftir lokun.



Sundæfingar verða í sundlauginni á Blönduósi

25.08.2011

Tilkynning frá þjálfara sunddeildar Hvatar

Sundæfingar á vegum Sunddeildar Hvatar hófust að nýju miðvikudaginn 24. ágúst s.l. í sundlauginni á Blönduósi.

Æfingar verða sem hér segir:

Mánudagar

Miðvikudagar

Fimmtudagar

1. - 2. bekkur

16:15 – 17:15

3. – 5. bekkur

17:15 – 18:15

17:15 – 18:15

6. – 10. bekkur

18:15 – 19:30

18:15 – 19:30

Iðkendur þurfa að vera mættir u.þ.b. 10 mínútum fyrir æfingu til að vera tilbúnir þegar æfing byrjar. Iðkendur mega ekki fara ofan í laugina fyrr en á þá er kallað. Frekari upplýsingar veitir Berglind Björnsdóttir, þjálfari í síma 863-6037.

Æfingagjöld eru:

1. og 2. bekkur = 1.000 krónur á mán.
3. - 5. bekkur = 2.000 krónur á mán.

6. bekkur og uppúr = 2.200 krónur á mán.



Opnunartímar í ágúst

25.08.2011

Mánudaga til fimmtudaga frá 8:00 – 21:00

Föstudaga frá 8:00 – 17:30

Laugardaga frá 10:00 – 17:00

Sunnudaga frá 10:00 – 17:00



Athugið:

- Hætt er að hleypa ofan í sundlaugina 30 mín. fyrir lokun.

- Gestir Íþróttamiðstöðvarinnar skulu yfirgefa húsið eigi síðar en 15 mín. eftir lokun.




Athugið breyttan opnunartíma um helgar út ágústmánuð !l

17.08.2011

Athugið breyttan opnunartíma
um helgar út ágústmánuð !

Laugardaga er opið frá 10:00 til 17:00
Sunnudaga er opið frá 10:00 til 17:00



Íþróttamiðstöðin á Blönduósi - Tímar í íþróttasal

08.08.2011

Þeir sem hafa áhuga á að leigja tíma í íþróttamiðstöðinni í vetur vinsamlega skilið inn skriflegum umsóknum til starfsmanns, eða rafrænt á netfang umsjónarmanns: mummi@blonduskoli.is
fyrir 1. september 2011.


Guðmundur Haraldsson,
umsjónarmaður




Laus störf í íþróttamiðstöð/sundlaug

04.07.2011

Lausar eru 2 stöður(kvenna) í gæslu í íþróttamiðstöð/sundlaug. Um er að ræða fullt starf og vaktavinnu. Umsóknarfrestur er til 22. júlí nk. Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður íþróttamiðstöðvarinnar í síma 452 4178. Umsóknum skal skilað á netfangið: mummi@blonduskoli.is



Lokað Hvítasunnudag

12.06.2011

12. júni Hvítasunnudag LOKAÐ

13. júní 2. Hvítasunnu opið frá kl. 11:00 - 18:00

17. júní opið frá kl. 16:00 - 20:00

.



Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ, frítt í sund á Blönduósi

01.06.2011

Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ verður sem kunnugt er á laugardaginn.

Hlaupið verður frá Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi kl. 11. Að venju verður boðið upp á Kristal að hlaupi loknu og að auki verður óvæntur glaðningur fyrir alla þátttakendur.

Líkt og í fyrra býður Blönduósbær öllum konum sem hlaupa á Blönduósi og mæta í hlaupabolnum sínum frítt í sund á laugardeginum, en sundlaugin verður opin frá kl. 10 – 20 á laugardaginn.

Bolirnir í ár eru fallega bláir og kosta 1.250 kr.




Íþróttamiðstöðin opin 2. júní

30.05.2011

Opið á 2. júní, Uppstigningardag frá klukkan. 11:00 -18:00



Viðbótaropnun í maí og lokun vegna námskeiða

16.05.2011

Viðbótaropnun í maí:
Íþróttamiðstöðin verður opin sunnudaginn 22. og 29. maí frá 10:00 til 16:00.

Lokun vegna námskeiða
Íþróttamiðstöðin verður lokuð miðvikudaginn 25. og fimmtudaginn 26. maí.



Sumaropnun sundlaugar og þreksals

16.05.2011

Frá og með 1. júní verður Íþróttamiðstöðin opin sem hér segir:

Mánudaga til föstudaga kl. 8:00 til 21:00

Laugardaga og sunnudaga kl. 10:00 til 20:00

Gjaldskrá er sýnileg hér á vef íþróttamiðstöðvarinnar:

Í búningsklefum og á sundlaugarsvæði eru skilti með öryggis- og umgengnisreglum. Við hvetjum alla til að lesa þær vel yfir og fara eftir þeim. Sérstaklega viljum við biðja foreldra um að lesa eftirfarandi breytingu á fyrri reglugerð um hollustuhætti á sund- og baðstöðum:
Börnum yngri en 10 ára er óheimill aðgangur að sund- og baðstöðum nema í fylgd með syndum einstaklingi 15 ára eða eldri. Ekki skal leyfa viðkomandi að hafa fleiri en tvö börn með sér, nema um sé að ræða foreldri eða forráðamann barna. (Sjá reglugerðina í heildsinni á: http://stjornartidindi.is/Advert.aspx?ID=d95ce3d0-05db-4dab-aada-c00b50fd64ed)

Einnig viljum við hvetja foreldra til að brýna fyrir börnum sínum að fara eftir þeim reglum sem settar eru og fara að fyrirmælum starfsmanna Íþróttamiðstöðvarinnar í hvívetna.

Gleðilegt sumar.
Starfsfólk Íþróttamiðstöðvarinnar á Blönduósi



Síðasti tíminn í íþróttaskólanum er fimmtudaginn19. maí.

16.05.2011

Síðasti tíminn í íþróttaskólanum er fimmtudaginn19. maí. Vonandi verða allir duglegir að mæta í íþróttaskólann í sumar (auglýst síðar).
Takk fyrir samstarfið í vetur og hafið það gott í sumar.

Sumarkveðja starfsfólk íþróttaskólans



Síðasti tíminn í íþróttaskólanum er fimmtudaginn19. maí.

16.05.2011

Síðasti tíminn í íþróttaskólanum er fimmtudaginn19. maí. Vonandi verða allir duglegir að mæta í íþróttaskólann í sumar (auglýst síðar).
Takk fyrir samstarfið í vetur og hafið það gott í sumar.

Sumarkveðja starfsfólk íþróttaskólans



Sumaropnunartími sundlaugar

19.04.2011

Á bæjarráðsfundi Blönduósbæjar í gær var sumaropnun sundlaugarinnar á Blönduósi til umræðu. Samþykkt var að sundlaugin yrði opin mánudaga til föstudaga frá klukkan 8 til 21 og laugardaga og sunnudaga frá klukkan 10 til 20.

Bæjarráð samþykkti eftirfarandi opnunartíma:
Mánudag-föstudag: 08:00-21:00
Laugardag-Sunnudag: 10:00-20:00



Íþróttamiðstöðin á Blönduósi auglýsir eftir fólki í afleysingar í sumar

19.04.2011

Blönduósbær óskar eftir að ráða starfsfólk í Íþróttamiðstöðina. Um er að ræða sumarafleysingar bæði fullt starf og hlutastarf. Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri.

Starfið er vaktavinna sem felur m.a. í sér vinnu við ræstingar, afgreiðslu, símavörslu, öryggisgæslu og annað það sem til fellur. Fjölbreytt starf þar sem mikil áhersla er lögð á mannleg samskipti bæði við fullorðna og börn.

Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Haraldsson, forstöðumaður í síma 894-4394. Senda má umsóknir rafrænt á netfang: mummi@blonduskoli.is eða á bæjarskrifstofu, Húnabraut 6, 540 Blönduósi. Umsóknarfrestur er til 28. apríl 2011.

Framkvæmdakostnaður vegna sundlaugar 520 m.kr.

23.03.2011


Á fundi bæjarráðs Blönduósbæjar í gær lagði sundlaugarhópur fram skýrslu um framkvæmd byggingar við Íþróttamiðstöðina á Blönduósi. Framkvæmdirnar fóru fram á árunum 2007-2010 og er framkvæmdakostnaður um 520 milljónir króna.

Á fundinum gerði sundlaugahópurinn grein fyrir framkvæmdinni og skiptingu einstakra verkþætta og fóru yfir frávik sem orðið höfðu á verkinu.

Í sundlaugahópnum eru þeir Ágúst Þór Bragason, Guðmundur Haraldsson, Stefán Árnason og Valgarður Hilmarssonar.

Opnunartími sundlaugar
Á fundinum ræddi bæjarráð einnig opnunartíma sundlaugarinnar. Var samþykkt tillaga forstöðumanns íþróttamannvirkja að páskaopnun sundlaugarinnar verði með eftirfarandi hætti:

Skírdagur - 10:00-16:00
Föstudagurinn langi – lokað
Laugardagur - 10:00-16:00
Páskadag – lokað
Annar í páskum – 10:00-16:00

Jafnframt ræddi bæjarráð opnun sundlaugar sumarið 2011 og var bæjarstjóra falið að koma með tillögur að opnun sundlaugar í samráði við forstöðumann Íþróttamiðstöðvar á næsta fund bæjarráðs.


Fréttin var á huni.is


Spartacus – hreyfing í Íþróttamiðstöðinni

23.03.2011

Þriðja og síðasta Spartacus námskeið vetrarins/vorsins hefst í kvöld kl. 19 í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi.

Námskeiðið er 8 skipti og eru tímarnir á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 19 – 20. Námskeiðið kostar 7.600 kr. og 3.800 ef keyptir eru fjórir tímar. Einnig er hægt að kaupa staka tíma á 1.300 kr.
Á námskeiðinu er lögð áhersla á æfingar fyrir kvið- og bakvöðva sem og æfingar til að auka þol.
Æfingarnar eru frá einkaþjálfurunum Sirrý og Fannari Karvel en þau hafa bæði langa reynslu í faginu. Æfingarnar eru fjölbreyttar sem og uppbygging hvers tíma – auk þess að vera mjög skemmtilegar og krefjandi. Umsjónarmaður námskeiðisins er Berglind Björnsdóttir, íþróttakennari.
Nú er um að gera að drífa sig í Íþróttamiðstöðina í kvöld kl. 19 og taka svolítið á því.



Engin frjálsíþróttaæfing verður miðvikudaginn 16. mars

14.03.2011

Engin frjálsíþróttaæfing verður miðvikudaginn 16. mars.
Næsta æfing verður 23. mars

Sunna Gestsdóttir



Nýtt Spartacus námskeið að byrjar

09.02.2011

Langar þig til að komast í flott form?
Þarft þú tilbreytingu frá þreksalnum?
Langar þig til að prufa nýjar æfingar?

Fimmtudaginn 10. febrúar byrjar nýtt Spartacus námskeið. Að þessu sinni verða 10 tímar í námskeiðinu. Tímarnir verða eins og áður 2x í viku, á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 19-20. Námskeiðið kostar 9.500.

Spartacus tímarnir eru ótrúlega skemmtilegir, þar er unnið á stöðvum og áhersla lögð á góðar styrktaræfingar og aukið þol.
Mikil áhersla er lögð á að styrkja kvið, bak og þá vöðva sem styðja við hryggjarsúluna. Nýjar æfingar frá einkaþjálfurunum Fannari Karvel og Sigríði Þórdísi í hverjum tíma, en þau hafa mikla reynslu og menntun m.a. í meiðslaforvörnum og þjálffræði.

Umsagnir þeirra sem voru að ljúka Spartacus námskeiði:
"Snilldar tímar, frábærar æfingar, mjög skemmtilegir tímar og gefandi fyrir sál og líkama, góðar æfingar - ég fann alveg nýja vöðva, stórskemmtilegt og hressandi"

Allir geta mætt, hver og einn fer á sínum hraða.

Skráning og nánari upplýsingar hjá Berglindi í síma 863-6037.



Frjálsíþróttaæfingar miðvikudaginn 26. janúar falla niður

25.01.2011

Frjálsíþróttaæfingar miðvikudaginn 26. janúar falla niður.

Næstu æfingar verða 2. febrúar.



Nýir hóptímar í íþróttamiðstöðinni

12.01.2011
Frá Berglindi Björnsdóttur íþróttakennara
Langar þig til að komast í flott form?
Þarft þú tilbreytingu frá þreksalnum?
Langar þig til að prufa nýjar æfingar?

Fimmtudaginn 13. janúar byrjar Spartacus - 8 tíma þjálfun. Tímarnir verða 2x í viku, á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 19-20.

Spartacus tímarnir eru ótrúlega skemmtilegir, þar er unnið á stöðvum og áhersla lögð á góðar styrktaræfingar og aukið þol.
Mikil áhersla er lögð á að styrkja kvið, bak og þá vöðva sem styðja við hryggjarsúluna. Nýjar æfingar frá einkaþjálfurunum Fannari Karvel og Sigríði Þórdísi í hverjum tíma, en þau hafa mikla reynslu og menntun m.a. í meiðslaforvörnum og þjálffræði.

Allir geta mætt - alveg sama hvernig líkamsástandið er, hver og einn fer á sínum hraða.

Skráning og nánari upplýsingar hjá Berglindi í síma 863-6037.




Sundæfingar á nýju ári

07.01.2011

Mánudaginn 10. janúar hefjast sundæfingar aftur eftir gott jólafrí.
Örlitlar breytingar hafa orðið á æfingatímum, æfingar verða sem hér segir:

Kl.

Mánud.

Kl.

Miðv.d.

Kl.

Fimmtud.

 

 

 

 

16:15

1.– 2. bekkur

17:15

3. – 5. bekkur

17:00

 

17:15

3. – 5. bekkur

18:15

6. – 10. bekkur

 

 

 

 


17:30

    6. – 10. bekkur    

 
Iðkendur mæti u.þ.b. 10 mínútum fyrir æfingu til að vera tilbúnir þegar æfing byrjar. Iðkendur mega ekki fara ofan í laugina fyrr en á þá er kallað.
Ef af einhverjum ástæðum verður ekki hægt að nota sundlaugina, t.d. vegna veðurs, verða æfingar færðar inn, ekki felldar niður.

Þá er kominn nýr (gamall) þjálfari, Berglind Bj. sími 863-6037, sem mun annast æfingar.
Æfingagjöld fyrir 1.-2. bekk eru 800 krónur á mánuði, fyrir 3. – 5. bekk eru 1.600 krónur á mánuði og fyrir 6. – 10. bekk 2.000 krónur.

 


Opnunartímar breytast í janúar 2011

29.12.2010

Sundlaug:
Mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga er opið frá kl. 06:45 til 9:00 og 15:00 til 20:00

Þriðjudaga er opið frá kl. 13:00 til 20:00

Föstudaga er opið frá kl. 13:00 til 17:00

Laugardaga er opið frá kl. 10:00 til 16:00

ATH: Lokað á sunnudögum

Þreksalur:
Mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga er opið frá kl. 06:45 til 21:00

Þriðjudaga er opið frá kl. 07:45 til 21:00

Föstudaga er opið frá kl. 07:45 til 17:00

Laugardaga er opið frá kl. 10:00 til 16:00

ATH: Lokað á sunnudögum

Athugið:

- Hætt er að hleypa ofan í sundlaugina 30 mín. fyrir lokun.

- Gestir Íþróttamiðstöðvarinnar skulu yfirgefa húsið eigi síðar en 15 mín. eftir lokun.



Hin árlega hópa- og fyrirtækjakeppni Hvatar

29.12.2010
Hin árlega hópa- og fyrirtækjakeppni Hvatar í innanhús knattspyrnu fer fram miðvikudaginn 29. desember og hefst mótið kl 17:00. Spilaður verður svokallaður "löggubolti" þ.e.a.s. 4 í liði, spilað er á handboltamörkin, ekki er leyfilegt að verja með höndum og boltanum er kastað inná (innkast) þegar hann fer útaf. Einnig þurfa einhverjir úr liðunum að sjá um dómgæslu þegar þau eru ekki að keppa.Body Pump tímar verða í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi í dag, þriðjudag, og á fimmtudag. Tímarnir hefjast kl. 17 báða dagana.
Nú er um að gera að drífa sig upp úr sófanum og í íþróttagallann. Tíminn kostar 500 krónur á sérstöku jólatilboði og allir 15 ára og eldri eru velkomnir.


ATH: Körfubolta æfing fellur niður vegna mótsins.




Hreyfing milli hátíðanna

28.12.2010
Body Pump tímar verða í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi í dag, þriðjudag, og á fimmtudag. Tímarnir hefjast kl. 17 báða dagana.
Nú er um að gera að drífa sig upp úr sófanum og í íþróttagallann. Tíminn kostar 500 krónur á sérstöku jólatilboði og allir 15 ára og eldri eru velkomnir.




Hreyfing milli hátíðanna

28.12.2010
Body Pump tímar verða í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi í dag, þriðjudag, og á fimmtudag. Tímarnir hefjast kl. 17 báða dagana.
Nú er um að gera að drífa sig upp úr sófanum og í íþróttagallann. Tíminn kostar 500 krónur á sérstöku jólatilboði og allir 15 ára og eldri eru velkomnir.



Jólaopnun

03.12.2010
Lokað 24., 25., 26. og 31. desember. Einnig er lokað 1. og 2. janúar 2011.

Hefðbundin opnun er aðra daga nema sundlaugin opnar kl. 13:00 á virkum dögum í stað 15:00 frá 20. desember til 30. desember og Þorláksmessu, 23. desember er húsið opið til kl. 16:00.

Pantið tímanlega ef þið viljið fá tíma í salnum á þessum dögum.



Heilsuátak í Húnavatnssýslu - Farsælli framtíð

24.11.2010
Heilsuátak í Húnavatnssýslu - Farsælli framtíð
Nú er fjögurra vikna heilsuátakinu sem hófst 23.október lokið. Þeir sem tóku þátt eru vinsamlega beðnir um að skila eyðublöðunum útfylltum í Íþróttamiðstöðina.

Átakið hafði jákvæð áhrif og vonandi halda allir áfram að hreyfa sig. Við flytjum ykkur fréttir síðar af þeim sem stóðu sig best.

Laugardaginn 23. október var opinn dagur í Íþróttamiðstöðinni. Hópur fólks kom og skoðaði bygginguna undir leiðsögn Guðmundar Haraldssonar forstöðumanns, Ágústs Þórs Bragasonar forseta bæjarstjórnar og umsjónarmanns tæknideildar og Stefáns Árnasonar byggingarfulltrúa. Boðið var upp á skúffukökur frá Vilkó, ís frá kjörís og kleinur frá Sveitabakaríinu og sáu fulltrúar frá bæjarstjórn og Hvöt til þess að enginn færi svangur heim. Fimmtudaginn 4. nóvember komu eldriborgarar síðan í heimsókn og fengu leiðsögn um svæðið og veitingar að því loknu. Á móti þeim tók starfsfólk Íþróttamiðstöðvarinnar ásamt Þórhöllu Guðbjartsdóttur skólastjóra. Við þökkum öllum sem sáu sér fært að mæta kærlega fyrir komuna.



Öryggi sundstaða aukið

30.10.2010
Ítarlegri kröfur um öryggiskerfi og laugargæslu eru gerðar í nýrri reglugerð um sundstaði sem Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur undirritað.

"Þá eru auknar kröfur gerðar um öryggi barna og sérstakar kröfur gerðar til sundlaugavarða, kennara og þjálfara," segir í tilkynningu umhverfis­ráðu­neytisins. Við hönnun nýrra lauga og endur­gerð eldri skal gera ráð fyrir nauðsynlegri lýsingu og öryggiskerfi á borð við myndavélar. Þá eiga sundstaðir að hafa stöðuga laugargæslu meðan gestir eru í laug. - óká

Tekið af visir.is

Sjá nánar hér >>



Fyrstu sundæfingarnar á Blönduósi í mörg ár

20.10.2010
Frábær mæting var á fyrstu sundæfingarnar í nýju sundlauginni Blönduósi. Æfingarnar eru fyrir börn á grunnskólaaldri og mættu 40 krakkar í tveim hópum en það er 1/3 nemenda Blönduskóla.
Kristín Kristjánsdóttir er þjálfari og Berglind Björnsdóttir er henni til aðstoðar.

Sjá myndir í myndasafni vefsins >>





Heilsuátak í Húnavatnssýslu - Farsælli framtíð

20.10.2010
Nú er tækifæri fyrir þá sem nú þegar eru ekki búnir að koma sér upp úr stólnum að koma sér af stað með öllum hinum.

Heilsuátak hefst laugardaginn 23. okt. 2010 og stendur í fjórar vikur til laugardagsins 20. nóv. Verið með í heilsuátakinu; hreyfing lágmark 30 mínútur á dag, hver á sínum hraða, allir með - úti sem inni. Öll hreyfing telur. Sund: Lágmark 200m hvert skipti.

Keppni:
Einstaklingar/hópstjórar skrá samviskusamlega alla hreyfingu á eyðublað sem hægt er að nálgast hjá starfsfólki Íþróttamiðstöðvarinnar eða hér fyrir neðan frétt. Eyðublöðum er svo skilað í lok leiks og er þá tekið meðaltalið hjá hverjum hóp þannig að minni hópar eigi möguleika að vinna stærri hópa.

Skila þarf eyðublaðinu útfylltu í lok átaks til starfsfólks Íþróttamiðstöðvarinnar. Þeir hópar og einstaklingar sem hreyfa sig mest að meðaltali vinna keppnina.
Allar nánari upplýsingar um átakið veita starfsmenn Íþróttamiðstöðvarinnar.

Laugardaginn 23. október n.k. býður Íþróttamiðstöð – sundlaug Húnvetningum í skoðunarferð með leiðsögn, um bygginguna frá kl. 11:00 til 15:00.
Boðið verður uppá léttar veitingar. Vonumst við til að sjá sem flesta.




Kl. 16:00 verður leikur í bikarkeppni HSÍ milli Hamranna Akureyri og Fjölnis Grafarvogi í Íþróttamiðstöðinni.


Sækja excel-skjal fyrir skráningu æfinga >>

Sækja pdf-skjal fyrir skráningu æfinga >>



Sundæfingar á Blönduósi

18.10.2010
Miðvikudaginn 20. október hefjast sundæfingar fyrir börn á grunnskólaaldri í sundlauginni á Blönduósi, þjálfari verður Kristín Kristjánsdóttir.

Til að byrja með verða æfingar tvisvar í viku, í það minnsta fram að jólum – en um smá tilraun er að ræða.

Skipt verður í yngri og eldri hóp; í yngri hóp verða börn fædd 1999 og síðar og í eldri hóp börn fædd 1995 - 1998. Athugið að þessi skipting gæti breyst, en hún fer nokkuð eftir fjölda á æfingum.

Æfingar verða á mánudögum og miðvikudögum. Yngri hópur kl. 17 á mánudögum og kl. 18 á miðvikudögum. Eldri hópur kl. 18 á mánudögum og kl. 18:45 á miðvikudögum.

Verð fram að jólum er kr. 3200 fyrir yngri hóp en kr. 4000 fyrir eldri hóp.

Nánari upplýsingar í síma 863-6037 hjá Berglindi eða í síma 849-0703 hjá Kristínu.

Tekið af huni.is >>



Íþróttaskóli Hvatar

7.10.2010
Íþróttaskólinn byrjar mánudaginn 11. okt og verður hann á sama tíma og síðustu ár eða frá kl 14:00 – 15:00 á mánu-, þriðju-, miðviku- og fimmtudögum. Starfsmenn íþróttaskólans að þessu sinnu eru þau Brynhildur Erla Jakobsdóttir, Jóhannes Guðbjörnsson, Þórður Rafn Þórðarson, Magdalena Berglind Björnsdóttir, Páley Wium Ragnarsdóttir og Róbert Daníel Jónsson. Einnig munu nemendur í íþróttafræði verða þeim til aðstoðar í vetur eins og venjulega. Í fyrstu vikunni (11. - 14. okt.) eru ,,prufutímar" og geta þá allir sem vilja verið með en eftir þann tíma verða þátttakendur skráðir í íþróttaskólann. Gjaldið fyrir haustönn (11. okt til 16. desember) eru 8000 kr fyrir barnið, ef systkini eru í íþróttaskólanum er veittur 3000 kr afsláttur (samtals 13000 kr fyrir þau bæði). Við hvetjum sem flesta til að vera með okkur í skemmtilegu og fjölbreyttu starfi í íþróttaskólanum. Stuðningur foreldra/forráðamanna í íþróttastarfi skiptir miklu máli fyrir börnin, tökum þátt og hvetjum þau áfram.

Íþróttaskólinn er góður kostur vegna þess:
 að þar fá börnin fjölbreytta og góða hreyfingu sem vegur upp á móti hinni sívaxandi setu fyrir framan sjónvarps- og tölvuskjái.

 að hreyfiuppeldi barna þarf að vera fjölbreytt til þess að það gefi bestan árangur og sérhæfing á ekki að koma fyrr en síðar.

 að allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.

 að ef vel tekst til getur þetta gefið grunninn að góðu forvarnarstarfi.


Íþróttakveðja
Starfsfólk íþróttaskólans



Opið hús í Íþróttamiðstöðinni

6.10.2010
Við bjóðum bæjarbúa í heimsókn til að skoða Íþróttamiðstöðina 23. október frá kl. 11:00 til 15:00. Boðið verður upp á leiðsögn um allt svæðið þ.e. alla íþróttaaðstöðuna, kjallara, fundarherbergi o.fl.
Í tengslum við daginn ætlum við að starta heilsuátaki sem inniheldur smá keppni bæði einstaklings og liða.

Nánari útfærsla verður auglýst síðar.


Körfuboltaæfingar fyrir karla eru byrjaðar

5.10.2010
Nú mætum við allir hressir á körfuboltaæfingu miðvikudaginn n.k. klukkan 20:00 til 21:00. Strákarnir á Hvammstanga eru búnir að hafa samband og vilja leik í október þannig að við verðum að vera klárir í að halda andliti í þeirri viðureign 

Það þurfa allir að greiða fyrirfram tímana og kostar stakur tími 450 kr . Hagkvæmast er fyrir okkur að kaupa eitt tímabil (sept. – des.) sem kostar 5400 kr.

Hvöt Head Coach Róbert AIR-DAN Jónsson



Frjálsíþróttaæfingar USAH hefjast í vikunni

4.10.2010
Æfingar í frjálsum íþróttum á vegum USAH hefjast 6. október og verða í vetur á miðvikudögum í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi. Æfingarnar verða frá kl. 15:15 til 16:15 fyrir 4. – 6. bekk og frá kl. 16:15 til 17:30 fyrir 7. – 10. bekk. Þjálfari verður Sunna Gestsdóttir.


Sundæfingabúðir á Blönduósi!

3.10.2010
Sex sundlið frá ýmsum stöðum á landinu mættu í æfingabúðir í Íþróttamiðstöðina á Blönduósi um helgina ásamt þjálfurum og fararstjórum. Þetta voru tæplega 100 manns.
Félögin sem komu voru, Vestri (Ísafirði), UMFB (Bolungarvík), Grindavík, Þróttur (Neskaupsstað), Reynir Sandgerði, UMSB (Borganes).
Félögin mættu seinnipartinn föstudaginn 1. október og fóru þá þá sum á stutta sundæfingu og svo í mat í félagsheimilinu sem Potturinn og pannan sá um en liðin voru í fullu fæði hjá þeim. Eftir matinn var farið svo aðeins í sundlaugina til að leika sér og prófa rennibrautina.
Öllum krökkunum frá félögunum var skipt í hópa eftir getu og aldri og æfðu sumir krakkarnir 3x á laugardeginum og þeir sem syntu mest fóru yfir 14 km. Eftir góðar æfingar var svo haldin kvöldvaka í félagsheimilinu þar sem öll félögin voru með skemmtiatriði.
Á sunnudeginum voru æfingar fram að hádegi og voru eldri krakkarnir mikið á tækniæfingum þar sem myndavélar undir vatninu í sundlauginni komu að góðum notum.
Þess má geta að krakkarnir voru til fyrirmyndar í allri umgengni og framkomu.

Þjálfarar liðana töluðu um að aðstaðan okkar væri öfundsverð og hafa þau hug á að koma aftur og þá jafnvel í mars eða apríl 2011.

Skoða myndir hér >>




Stundaskrá fyrir veturinn í Íþróttahúsinu

24.09.2010
Hægt er að nálgast á síðunni undir hnappnum ÍÞRÓTTAHÚS stundaskrá fyrir íþróttahúsið á PDF-formi. Athugið en á eftir að bætast tímar við, fótboltaæfingar hjá Hvöt ofl. þegar það hefur borist okkur. Það er ekki komin tími á hvenær Íþróttaskólinn byrjar en hann verður á sama tíma og áður eins sést á stundaskránni.


SMELLIÐ HÉR TIL AÐ SKOÐA STUNDASKRÁ FYRIR ÍÞRÓTTAHÚS >>




Body Pump

23.09.2010
Body pump tímar byrja í Íþróttamiðstöðinni fimmtudaginn 23. september.

Tímar verða á þriðjudögum kl. 06:20
og fimmtudögum kl. 19:00.

Allir velkomnir.

Skráning og nánari upplýsingar í síma 863 6037,

Berglind Björnsdóttir, íþróttakennari

ps. Ef þið viljið skoða hvað Body pump er hvet ég ykkur til að kíkja inn á http://www.lesmills.com/global/bodypump/about-bodypump.aspx 

Eftirfarandi texta fékk ég sendan frá Þrekvirki, sem er umboð Les Mills æfingakerfanna á Íslandi.

BODYPUMP™ ávinningur:

·         Brennir allt að 600 kalóríum í einum tíma

·         Styrkir alla helstu vöðvahópa

·         Bætir alhliða líkamsform

·         Mótar og tónar vöðvana

·         Bætir beinmassa og er frábær vörn gegn beinþynningu

·         Þú upplifir árangurinn




Badminton og Körfubolti

22.09.2010
Körfubolta- og badmintontímar byrja
Fimmtudaginn 16. september byrjuðu badmintontímar í íþróttahúsinu og verða þeir í vetur eins og undanfarin ár á mánudögum og fimmtudögum frá kl.19:00 til 20:30.

Miðvikudaginn 29. september er fyrsti körfuboltatíminn kl. 20:00 og verður körfuboltinn í
vetur á þeim tíma frá klukkan 20:00 til 21:00.



Leikfimi

22.09.2010
Erum að byrja aftur með 20 tíma námskeið í styrktar- og teygjuæfingum, engin hopp.

Tímarnir verða á mánudögum og miðvikudögum kl. 18:00 í Íþróttahúsinu á Blönduósi, fyrsti tíminn mánudaginn 27. september.
Allt námskeiðið kostar 9.000 kr. en stakur tími 550 kr., auk gjalds fyrir aðgangskort.
Hittumst hress og kát.
Sjúkraþjálfararnir..

 

Fótbolti fyrir konur á öllum aldri

07.09.2010
Líkt og í fyrra verður fótbolti í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi fyrir konur á öllum aldri sem kallast "Old girls". Spilað verður á miðvikudagskvöldum kl. 19:00 – 20:00. Allar konur velkomnar í smá hlaup og skemmtilegheit. Nánari upplýsingar gefur Kristjana í sím 452-4118 eða 849-4649.


Vetraropnun

31.08.2010
Bæjarráð Blönduósbæjar hefur samþykkt nýjan opnunartíma sundlaugarinnar í vetur. Bæjarráð leggur til að sundlaugin verður opin eins og hér segir:

Mánudaga-fimmtudaga frá kl. 6:45-9:00 og 15:00-20:00

Föstudaga frá kl. 6:45-9:00 og 15:00-18:00

Laugardaga frá kl. 10:00-18:00

Sunnudaga frá kl. 10:00-16:00

Ofangreindur opnunartími verður endurskoðaður fyrir lok október.



Sumaropnun lýkur 31. ágúst

27.08.2010
Sumaropnun Íþróttamiðstöðvar og sundlaugar lýkur 31. ágúst.

Vetraropnun auglýst fljótlega!

Þeir sem hafa áhuga á að leigja tíma í íþróttamiðstöðinni í vetur vinsamlegast skilið inn skriflegum umsóknum til starfsmanns eða á netfang umsjónarmanns: mummi@blonduskoli.is fyrir 1.september.

Nýjar myndir

18.08.2010
Nýjar myndir í myndasafni vefsins af vígslu sundlaugarinnar og einnig loftmyndir af sundlaugarsvæðinu og Blönduósbæ. Ljósmyndari: Róbert Daníel Jónsson.





Sundlaugin formlega vígð 17. júlí

19.07.2010
Nýja sundlaugin á Blönduósi var formlega vígð á Húnavöku í blíðskaparveðri á laugardaginn að viðstöddu fjölmenni. Valgarður Hilmarsson stjórnaði dagskránni en m.a. ræðumanna voru Arnar Þór Sævarsson bæjarstjóri, Ágúst Þór Bragason forseti bæjarstjórnar, Þóra Sverrisdóttir oddviti Húnavatnshrepps, Jón Bjarnason ráðherra og fulltrúar Sundsambands Íslands og UMFÍ.
Skólalúðrasveit Seltjarnarness undir stjórn Kára Húnfjörð Einarssonar lék nokkur létt lög milli atriða en það var svo Einar Þorláksson fyrrum oddviti Blönduósshrepps sem klippti á borða til marks um formlega vígslu sundlaugarinnar. Að því loknu gat almenningur skellt sér í sund.

Tekið af huni.is >>




Rúmlega 8400 manns á tæplega mánuð

14.07.2010
Sundlaugin okkar á Blönduósi hefur heldur betur slegið í gegn hjá heimamönnum og ferðamönnum sem leið eiga um þjóðveg 1 í gegnum Blönduós. Rúmlega 8400 manns hafa sótt laugina frá opnun þann 16. júní s.l. og er Guðmundur Haraldsson forstöðumaður laugarinnar himinlifandi yfir aðsókninni. Hann segist hafa átt von á góðri aðsókn en þetta hafi farið langt fram yfir hans björtustu vonir.
Nú stendur formleg vígsla fyrir dyrum á Húnavöku, nánar tiltekið á laugardaginn kemur kl. 12:00 og eru því iðnaðarmenn á fullu við fegrun utan við sundlaugarsvæðið sjálft. Þar er verið að helluleggja, leggja út mold, þökuleggja og fleira. Fréttaritari skrapp með myndavélina á svæðið í gær og náði nokkrum myndum af mönnum við störf.

Tekið af huni.is >>

 

2760 hafa komið í nýju sundlaugina til þessa

21.06.2010
2760 manns hafa skroppið í sund í nýju sundlauginni á Blönduósi frá opnun
Nýja sundlaugin okkar á Blönduósi hefur svo sannarlega slegið í gegn frá því að hún var opnuð fyrir 5 dögum síðan. Í samtali við Guðmund Haraldsson, forstöðumann Íþróttamiðstöðvarinnar, hafa bæjarbúar og aðrir gestir fjölmennt í sund og hafa hlutirnir gengið nokkuð vel fyrir sig þrátt fyrir nokkra hnökra í upphafi eins og gengur og gerist þegar svona stór mannvirki er opnað. Guðmundur tjáði Húnahorninu að frá opnun væru gestir sundlaugarinnar 2760 talsins en á laugardeginum komu tæplega 1300 manns í laugina.
Enn er nokkur vinna eftir við sundlaugina sjálfa og umhverfið í kring en stefnan er sett á að klára það fyrir formlega opnun sundlaugarinnar á Húnavöku dagana 16. – 18. júlí.

Tekið af huni.is >>

 

Nýja sundlaugin tekin í notkun í dag

15.06.2010
Um það bil 250 manns komu í nýju sundlaugina á Blönduósi fyrsta opnunardaginn. Að auki kom talsvert af gestum til að skoða svæðið. Tókst opnunin mjög vel og voru sundlaugargestir ánægðir með sundlaugarsvæðið og höfðu mjög margir orð á því að það væri vel upp sett og skemmtilegt fjölskyldusvæði. Rennibrautirnar slógu án efa í gegn hjá öllum aldurshópum.

Enn er ákveðnum verkum ólokið við laugina og verðum þeim lokið á næstu vikum.

Samantekt af öðrum miðlum og myndasíðum sem gaman er að skoða má finna hér fyrir neðan:

Frétt á mbl.is >>

Myndir sem Sigríður Bjarney Aadnegard tók í dag >>

Frétt á huni.is >>

Stóri sundlaugardagurinn - Eftir Jón Sigurðsson >>

Myndir sem Jón Sigurðsson tók í dag >>

Myndir sem Mummi Haralds tók í dag >>




Íþróttamiðstöðin á Blönduósi sumaropnun

14.06.2010
Sumaropnun sundlaugar og þreksals

Íþróttamiðstöðin verður lokuð mánudaginn 14. og þriðjudaginn 15. júní.
Miðvikudaginn 16. júní ætlum við að fá nemendur sem voru síðastliðin vetur í 4., 5. og 6. bekk í Grunnskólanum á Blönduósi til að mæta kl. 13:30 með sundföt í Íþróttamiðstöðina. Þau verða þau fyrstu sem formlega fara í sund í nýju lauginni enda búin að sýna ótrúlega þolinmæði vegna framkvæmdanna.

Íþróttamiðstöðin verðu síðan opin almenningi (bæði sundlaug og þreksalur) miðvikudaginn 16. júní kl. 14:30 til 20:00 og fimmtudaginn 17. júní kl. 15:30 - 19:00


Frá og með 18. júní verður Íþróttamiðstöðin opin sem hér segir:

mánudaga til föstudaga kl. 9:00 til 21:00

laugardaga og sunnudaga kl. 10:00 til 18:00



Gjaldskrá er sýnileg hér á vef íþróttamiðstöðvarinnar >>

Í búningsklefum og á sundlaugarsvæði eru skilti með öryggis- og umgengnisreglum. Við hvetjum alla til að lesa þær vel yfir og fara eftir þeim. Sérstaklega viljum við biðja foreldra um að lesa eftirfarandi reglur:

REGLUR um öryggi á sundstöðum og við kennslulaugar

2. Sundgestir / umgengnisreglur
2.1 Börnum undir 8 ára aldri er óheimill aðgangur að sundstað nema í fylgd með syndum einstaklingi 14 ára eða eldri. Miðað er við fæðingarár. Ekki skal leyfa viðkomandi að hafa fleiri en tvö börn með sér. Þetta á þó ekki við um börn í fylgd foreldris eða forráðamanns.

2.2 Ábyrgðarmaður ber ábyrgð á þeim einstaklingi eða einstaklingum sem eru í fylgd hans. Hann skal einnig sjá um að ósyndir noti armkúta eða sundjakka af viðurkenndri gerð sem sundstöðum ber að hafa til útláns. Þrátt fyrir þetta ákvæði hafa laugarverðir sömu skyldum að gegna gagnvart þessum börnum eins og öðrum sundgestum þó að þau njóti sérstakrar gæslu fylgdarmanna.
Þó börn séu orðin 8 ára þá hvetjum við foreldra til að senda þau ekki ein í sund fyrstu skiptin ef langt er liðið frá síðustu sundferð og aldrei ef barnið er ekki orðið synt.

Einnig viljum við hvetja foreldra til að brýna fyrir börnum sínum að fara eftir þeim reglum sem settar eru og fara að fyrirmælum starfsmanna Íþróttamiðstöðvarinnar í hvívetna.

Nýja sundlaugin formlega vígð á Húnavökunni

14.06.2010
Samkvæmt drögum að dagskrá fyrir Húnavöku kemur fram að nýja sundlaugin verði
formlega vígð laugardaginn 19. júlí kl. 12:00.








Upplýsingar

Íþróttamiðstöðin Blönduósi
Melabraut 2
540 Blönduós


Sími: 452 4178







----------------------------------------



Stundaskrá íþróttahúss


-------------------------------



Íþróttamiðstöðin á facebook

  • -------------------------------------------------

    Vefstjóri: Róbert Daníel Jónsson

    rdj@simnet.is
    S:865-6060
    • -------------------------------------------------

    Vetraropnun.

    Sundlaug:

    Þriðjudaga og fimmtudaga
    er opið frá kl.13:00 til 21:00

    Mánudaga og miðvikudaga
    er opið frá kl. 06:30 til 9:00
    og 15:00 til 21:00

    Föstudaga er opið frá
    kl. 06:30 til 9:00
    og 13:00 til 17:00

    Laugardaga er opið frá
    kl. 10:00 til 16:00

    Sunnudaga er lokað.

    Þreksalur:

    Þriðjudaga og fimmtudaga
    er opið frá kl.07:45 til 21:00

    Mánudaga og miðvikudaga
    er opið frá kl. 06:30 til 21:00

    Föstudaga er opið frá
    kl. 06:30 til 17:00

    Laugardaga er opið frá
    kl. 10:00 til 16:00

    Sunnudaga er lokað.

    Athugið:

    - Hætt er að hleypa ofan í sundlaugina 30 mín. fyrir lokun.

    - Gestir Íþróttamiðstöðvarinnar skulu yfirgefa húsið eigi síðar en 15 mín. eftir lokun.




  • -------------------------------------------------
Umgengnisreglur í Íþróttamiðstöð >>