Íþróttadagur Blönduskóla verður haldinn á morgun fimmtudaginn 10. október.
Dagskráin hefst kl. 8:00 á Ólympíuhlaupi ÍSÍ þar sem nemendur og kennarar velja sér vegalengd við hæfi, þ.e. 2,5 km eða 5 km. Skráning í 5 km hlaup er fyrirfram hjá umsjónarkennara vegna tímatöku. Áhersla er lögð á að allir séu með og hver og einn hlaupi á sínum hraða. Allir hafi endurskins merki og klæði sig vel (muna eftir húfu og vettlingum).
Að hlaupi loknu fara nemendur upp á pallana í íþróttahúsinu og borða nestið sitt en boðið verður upp á fría mjólk í boði MS.
Dagskrá í íþróttahúsinu:
a) Stöðvar í sal:
Boccia, allir sem vilja, skráningar hjá umsjónarkennara.
Fitnessbraut fyrir 5. - 10. bekk.
Klifurkeppni í 1. – 4. bekk.
Þrekhjól fyrir 5. - 10. bekk.
Pílukastkeppni, allir sem vilja.
Borðtennis, allir sem vilja og ýmislegt fleira.
b) Bekkjarkeppni
1. - 4. bekkur: Þrautaboðhlaup. Allir með.
5. – 7. bekkur og 8. - 10. bekkur: Dodgeball. Keppni milli bekkja, hver leikur er að hámarki 5 mín.
c) Kappleikur: Kennarar taka á móti 10.bekkingum í einhverri skemmtilegri íþróttagrein.
Stöðvar og spil uppi á pöllum/skólastofa - Öllum heimil þátttaka.
d) Einhver skemmtilegur leikur í lokin ef tími vinnst til – Öllum heimil þátttaka.
ATH!!! Dagskráin stendur yfir frá kl. 8:00 - 12:15 og þá fara nemendur í hádegismat að honum loknum lýkur skóladegi.
Foreldrar og aðrir gestir eru velkomnir.
Íþróttakveðja,
Óli Ben, Erla og Steinunn Hulda
íþróttakennarar
Við Húnabraut | 540 Blönduós Sími: 452-4147 Netfang: blonduskoli@blonduskoli.is |
Skólinn er opinn frá |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: Mentor/ 452-4147 / blonduskoli@blonduskoli.is