Blönduskóli hefur verið svo lánsamur að frábærir einstaklingar hafa komið í skólann og hlustað á börnin lesa fyrir sig en vegna covid hefur þetta legið niðri um tíma. Núna langar okkur að byrja aftur og nú er þegar ein lestraramma byrjuð en okkur langar að bæta í hópinn, því mikilvægi lesturs hefur marg sýnt sig. Það er þannig að „ömmur og afar“ koma í skóla og láta börn lesa fyrir sig. Við leitum því til ykkar, er einhver áhugasamur þarna úti sem á lausan klukkutíma á viku eða fleiri? Athugið að þetta þurfa ekki að vera eiginlegar ömmur eða afar heldur einungis áhugasamir einstaklingar sem bjóða aðstoð sína.
Við viljum minna á að það er grímuskylda og hver og einn þarf að passa upp á persónulegar sóttvarnir.
Endilega hafið samband við Heiðbjörtu ritara Blönduskóla í síma 455-4750 eða sendið tölvupóst á blonduskoli@blonduskoli.is.